Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1973, Side 20

Læknaneminn - 01.07.1973, Side 20
HVAÐ ER HÆGT AÐ GERA Árið 1971 Hjónavígslur............... 1624 Hjúskaparslit............... 941 Þar af með lögskilnaði 305 Börn fædd.................. 4243 — óskilgetin .............. 1341 - óskilgetin og foreldrar ekki í sambúð............ 852 Ættleiðingar ................ 72 Ætli það séu nema tvö meiri- háttar störf, þar sem engra rétt- inda og prófa er talið með þurfa: annað er að ala upp og móta fólk, liitt er að stjórna landinu. Sigurjón Björnsson. Hversu lengi á sú skoðun að ríkja, að allir joreldtar séu góðir uppalendur, þegar ótal dœmi sýna hið gagnstœða. Það er ekki eins auðvelt og maður skyldi halda að benda á leiðir til úrbóta í þeim málum, sem að framan eru talin. Undirrót þessarra vanda- mála liggur djúpt í þjóðfélagsstrúktúrnum. Kjarnafjölskyldan er sam- býlisform, sem er svo gallað, að það getur ekki með nokkru móti full- nægt þeim kröfum, sem nútímafólk gerir til lífsins. Þar við bætist að ráðamenn þeir, sem möguleika hafa á að sníða verstu agnúana af þessu þjóðfélagsformi, eru uppteknir við að þjóna allt öðrum hagsmun- um en þeim, að skapa fólkinu hamingjuríkt líf. Það, sem gerir ráða- mönnum mögulegt að sigla um í stóriðjudraumum og malbikunarvímu, meðan fólkið í landinu býr við vonlausa félagslega aðstöðu, er það hvað fólk skynjar illa þátt þjóðfélagsins í þeirra einkalífi. Foreldrar, sem ekki koma barni sínu á barnaheimili, eru e. t. v. mjög sárir og jafn- vel reiðir, en ekki út í Birgi Isleif, heldur út í einhvern félagsráðgjafa hjá Sumargjöf, fólk sér ekki að það eru þúsundir annarra foreldra, sem búa við sama vandamál. Fólk sem lendir í hjónaskilnaði, kennir gjarn- an hvort öðru um, en leitar sjaldan orsaka i þjóðfélagsuppbyggingunni, jafnvel þótt hjónaskilnaðir séu nú crðnir það tíðir, að svona margl vont fólk geti ekki verið til í svo litlu landi. Þegar hjónavígslur eru 1624 og lögskilnaðir á fjórða hundrað, þá er eitthvað meira en lítið að. Fólk skynjar húsnæðisvandræðin líka á svipaðan hátt, það er í flestra augum vandamál hvers og eins. Kjarnafjölskyldan (þ. e.: Maður, kona, sjónvarp, íbúð, barn, bíll) er þjóðfélagsbrot, sem þarf sinn bás. Gömlu básarnir losna ekki fyrr en fækkað hefur svo í þeim að ekkert er orðið eftir nema sjónvarpið. I Reykjavík er lil meira en nóg húsnæði handa öllum íbúum. Stór hluti þessa húsnæðis hefur þó þann eina tilgang, að vera skrautumgjörð kringum eina eða tvær manneskjur. Þess vegna er húsnæðisþörf kjarnafjölskyldu vandamál, sem þjóðfélagið hefur fyrir löngu gefizt upp á að leysa. Happtlrtetíið Spurningin um hvort þjóðfélag- ið eða stúlkan skuli bera kostnað- inn við fæðinguna og uppeldi barnsins er samtvinnuð spurning- unni hvort við viljum lifa í sam- neyzluþjóðfélagi eða happdrættis- þj óðfélagi. Til eru menn, sem vilj a bara happdrættisþjóðfélag. Vinn- ingarnir í happdætti þjóðfélags- ins skuli vera tveir, auður og fá- tækt. Dregið skal að loknu balli í Klúbbnum á fösludags- og laugar- dagskvöldum. Þær konur, sem þungaðar verða, skuli tapa kr. 130 þús. á fyrsta ári eftir fæðinguna og síðan ca. 100 þús. árlega. Einn- ig skuli þær tapa atvinnu sinni eða námsfyrirætlunum, þær skuli gift- ast þeim fyrsta, sem býðst og gæta barnsins næstu tíu til fimmtán ár. Hinn vinninginn fær þjóðfélag- ið. Sá vinningur er nýlur og vel upp alinn þjóðfélagsþegn ókeyp- is, sem borgar mikinn skatt. Sumir benda á, að það sé auka- vinningur í spilinu fyrir þá, sem vilja. Utanlandsferð með fóslur- eyðingu að eigin vali, á eiginn kostnað. 16 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.