Læknaneminn - 01.07.1973, Síða 21
ÞAÐ. SEM HÆGT ER AÐ GERA
Þótt sum atriði í sambandi við írelsi til að eiga börn verði ekki fram-
kvæmd nema með strúktúrbreytingu á þjóðfélaginu eru önnur, sem eru
auðleyst og gætu hugsanlega bætt núverandi ástand verulega. Það fyrsta
er að byggja næg barnaheimili þar sem núverandi biðlistamenning er
nánast brot á almennum mannréttindum og mismunun fólks eftir sam-
býlisformi, eins og nú er, er nokkuð, sem ætti að vera bannað í hinni
íslenzku stjórnarskrá.
* Það kostar a. m. k. 600 milljónir að fullnægja núverandi dagvistun-
arþörf í Reykjavík, en þetta þarf að gera. Eðlilegast væri að atvinnu-
rekendur greiddu visst gjald til barnaheimilissjóðs fyrir hvern starfs-
mann (karl eða konu) eða rækju að öðrum kosti barnaheimili fyrjr
starfsfólk sitt.
* Leikterapi, barnasálfræði og fjölskylduráðgjöf þarf að gera að al-
varlegum háskólafögum, og stofna tilraunabarnaheimili til að fylgjast
með nýjungum í uppeldsimálum.
* Almannatryggingar ætlu að stuðla að því að börn séu ekki metin í
peningum, með því að minnka eins og hægt er útgjöld foreldra. Fæð-
ingarfrí á fullum launum ætti alltaf að veita annað hvort föður eða
móður í a. m. k. þrjá lil sex mánuði. Beinar fjárgreiðslur fyrir börn
eins og nú tíðkast eru hins vegar fremur ógeðfelldar, nema greinilega
sé skilgreint fyrir hvað sé verið að greiða.
* Mæðralaun (eða uppeldislaun) eru sjálfsögð, en hafa þann galla að
ríkið getur ekki fylgst með að verkið sé sómasamlega unnið. Ef til vill
væri ástæða til að greiða þeim foreldrum, hærri mæðralaun, sem lært
hafa barnauppeldi, á sama hátt og fagmenn fá yfirleitt hærri laun en
fúskarar annars staðar.
* I sambandi við mæður, sem eru í námi, má benda á að ekki væri
oeðlilegt að barneignir væru reiknaðar til einkunnar í almennri mennt-
un.
* Loks er ástæða til að benda á að á undanförnum árum hefur fé verið
sparað svo óskaplega við íslenzkar fæðingarstofnanir að þjónusta þar
er langt fyrir neðan það, sem hægt er að sætta sig við.
Frjálsar fóstureyðingar eru verkfallsrétlur mæðra. Vonandi teksl
þjóðfélaginu að semja við þær áður en til allsherjarverkfalls kemur.
Gwzluvellir
Um það bil þriðjungur barna á
aldrinum 2-6 ára eru „geymd“ á
gœzluvöllum borgarinnar. Þessir
vellir eru beinlínis geymslur. Þar
vinnur ehki sérþjáljað starfsjólk,
og jwtt j)essar starfsstúlkur vildu
reyna að leiðbeina börnunum þá
eru J)œr alltof fáliðaðar til þess að
geta sinnt nema litlum hluta.
„Ekki vorum við á barnaheim-
ilum, þegar við vorum ungir, en
urðum J)ó víðsýnir og félagslega
Jrroskaðir einstaklingar.“
Skipting kvenna, sem eiga börn
á aldrinum 0—10 ára eftir atvinnu
(skv. könnun Þorbjörns Brodda-
sonar):
Eingöngu húsmóðurstörf 49%
Úti hluta úr degi 21%
Úti hluta úr ári 6%
Úti fullt starj 17%
Onnur svör og ósvarað 7%
44% (± 4%) mœðra barna á
aldrinu 0-10 ára vinna úti.
ATH. Af ])eim mœðrum, sem eiga
yngsta barn á aldrinum 0-2 ára,
vinnur rúmlega helmingur ein-
góngu húsmóðurstörf en af J)eim,
sem eiga eldri börn aðeins Jrriðj-
ungur.
œður á aldrinum 16-19 ára
svara fyrir 45,6% fœðinga.
læknaneminn
17