Læknaneminn - 01.07.1973, Page 24
4. Hvað um börri kvennanna?
23,8% kvörtuðu undan vandræð-
um hjá börnunum. Um ýmislegt
var að ræða, svo sem geðrænar
truflanir, skólaörðugleika, hegð-
unarvandkvæði, óreglu. Aberandi
er, að mikil veikindi á smábörnum
eru fylgifiskur annarra vandamála
fjölskyldunnar.
5. Hvernig var reynsla kvenn-
anna aj aðgerðinni? Flestar voru
konurnar ánægðar með alla fyrir-
greiðslu og umönnun í sambandi
við umsókn og framkvæmd að-
gerðar. 3 kvörtuðu undan löngum
biðtíma eftir rúmi. 8 konur létu í
Ijós óánægju með gang mála. Var
það í nokkrum tilfellum vegna
þess, að þær voru lagðar inn til
hvíldarlegu, áður en endanleg á-
kvörðun yrði tekin. Konurnar eru
lítt hrifnar af óvissunni, sem þessu
fylgir, og hvíldin þykir þeim
skammgóður vermir.
Annað sem veldur óánægju
kvennanna er breytt viðmót slarfs-
fólks við þær frá seinustu fæðing-
arlegu þeirra. Þeim finnst þær
litnar hornauga og helzt þurfa að
laumast með veggjum fram. Bezt
væri að enginn vissi í hvaða er-
indagjörðum þær væru þarna.
Þeim fannst, að verið væri að
reyna að koma inn hjá þeim sekt-
arkennd. Einni fannst sér mis-
boðið, að „óreyndur strákur" væri
settur í að yfirheyra hana og
fannst komið fram við hana sem
væri hún hálfgert glæpakvendi.
Konunum fannst ekki nógu vel
gætt trúnaðar við sig, skýrsla væri
tekin í viðurvist fjölda manns og
undir hælinn lagt, hvort óviðkom-
andi fólk kæmist að viðkvæmnis-
málum þeirra.
6. Hvenœr var aðgerðin gerð?
Á fyrstu 12 vikum meðgöngu hjá
89,4%, 10,6% á 14.-16. viku, eng-
in aðgerð eftir 16. viku. Hjá Sví-
um voru 9,8% framkvæmdar á
fyrstu 12 vikum, 27,9% á 14.-16.
viku og 62% á 17.-24. viku.
7. Hvernig gekk aðgerðin? Yf-
irleitt vel. Umtalsverða blæðingu
fengu 16 konur, hitahækkun var
yfirleitt ekki umtalsverð nema í 2
lilfellum. 1 öðru tilfellinu var um
perforation að ræða og haematom
inf. í vi. parametrium. Hin konan
var með hita í 18 daga, þar af
tvo daga með mjög háan hita.
Báðar konur hafa átt börn síðan.
8. Haja konurnar eignazt börn
síðan aðgerð var gerð? 52,6%
hafa ekki orðið þungaðar á ný,
þar af voru 9 gerðar ófrjóar. 21%
hafa orðið barnshafandi gegn
vilja sínum, en 14,5% viljandi.
Segjast sumar þeirra hafa viljað
bæta sér upp fóstureyðinguna.
Ein varð tvisvar sinnum ófrisk
eftir fóstureyðinguna, lét eyða
fóstri í annað skiptið og fór fram
á, að hún yrði gerð ófrjó, en fékk
því ekki framgengt. Þessi kona
hafði 14 sinnum orðið ófrísk og
fætt 10 börn. Hún hafði alls ekki
getað annazt þessi börn. 3 hafði
hún gefið en önnur verið undir
eftirliti barnaverndarnefndar. 3
barna hennar eru í dag hálfgerðir
aumingj ar vegna drykkj uskapar
og lögbrota.
5 konur kvörtuðu yfir, að illa
hefði gengið að verða ófrískar
eftir fóstureyðinguna og 2 þeirra
tókst það ekki. Báðar voru þær
fjölbyrjur hált á fertugsaldri.
9. Hójðu konurnar reynt að
jyrirbyggja ótímabœra þungun?
Af konunum 76 voru það 63, sem
engar getnaðarvarnir notuðu fyr-
ir fóstureyðingu. Við eftirrann-
sókn eru það 23 konur, sem eng-
ar varnir nota. Notkun getnaðar-
varna virðist þeim ýmsum ann-
mörkum háð, erfitt að útvega þær
og mikil fyrirhöfn. Það tekur sinn
tíma að komast til læknis. Notkun
sumra getnaðarvarna hafi nei-
kvæð áhrif á samlíf, sumar teg-
undir þoli konurnar illa og aðrar
séu of óöruggar. Karlmenn virð-
ast yfirleitt ekki telja það hlutverk
sitt að sjá um getnaðarvarnir og
mjög er áberandi, að þeir veigra
sér við að kaupa verjur í apótek-
um. Nokkuð ber á vankunnáttu
um rétta notkun getnaðarvarna,
hetta er tekin of fljótt úr og pilla
talin virka 2-3 mán. hvíldartíma-
bilum. Virðist mikil þörf fyrir
aukna fræðslu, ráðgjöf og þjón-
ustu á þessu sviði.
10. Hvaða áhrif hafði fóstur-
eyðingin á heilsujar kvennanna?
Konunum bar saman um, að hún
hefði haft góð áhrif á líkamlegt
heilsufar sitt. Kynlífsvandamál
settu konurnar yfirleitt ekki í sam-
band við fóstureyðingu, en 2
kvörtuðu yfir kyndeyfð eftir ó-
frjósemisaðgerð. Hinar 7, sem
gengust undir slíka aðgerð, kváðu
það mikinn létti að þurfa ekki að
óttast þungun.
Hvað varðar áhrif fóstureyð-
ingarinnar á geðrænt heilsufar
skiptast konurnar í 3 hópa. 72,4%
hafa ekki fundið til sjálfsásakana
og eftirsjár, 18,4% hafa fundið
til vægra sjálfsásakana og eftir-
sjár um tíma, og 9,2% hafa fund-
20
LÆKNANEMINN