Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1973, Qupperneq 29

Læknaneminn - 01.07.1973, Qupperneq 29
RÖKRÆÐA Alls staðar þar sem komið hejur lil greina að rýmka garnlar fóstureyðingarlöggjafir, liafa orðið miklar deilur. Við tnunurn nú reyna að tína til sitt- hvað af röksemdum þeirn, sem beitt er, bœði með og á móti. „Lífið er heilutfí, otg enyinn ntit etjða lífi, þess vetfnu er fóstnreyðintj morð.“ Rétt er það, að lífið er heilagt. En liver veit meS vissu, hvenær líf kviknar? VerSur það við samruna eggs og sáðfrumu, eSa þegar frjóvgað eggið festir sig í legslímhúðinni, eða verður það þegar fóstrið fer að hreyfa sig? Ef menn teija, að líf kvikni við frjóvgunina, hljóta þeir t. d. að vera á móti getnað- arverjum eins og lykkjunni, eða jafnvel pillunni. Báðar þessar aðferðir hindra festingu írjóvgaðs eggs í leginu. Lengi hefur staðið mikill styrr um það, hvenær líf kvikni. Augustin hélt því fram, að lífið byrjaði, þeg- ar fóstrið færi að líta út eins og manneskja. Thomas frá Aquina: Þegar það fer að hreyfa sig. Aristoteles: Sveinbörn lifna eftir 40 daga en meybörn eftir 80 daga. Og það mikla autoritet Hippokrates: Lífið byrjar eftir ca. 30M-2 daga í móSurkviði. Margir eru þó þeirrar skoðunar, að þessi umræða sé tilgangslaus og ónauðsynleg, vegna þess að von- lausl sé að tímasetja það hvenær líf kvikni. Slíkt sé einstaldingsbundið og mjög mismunandi. Á ákveðn- um líma meðgöngutímans kviknar lilfinning fyrir því, að líf hafi myndast, bæði hjá konunni og nán- asta umhverfi hennar. I byrjun þungunar upplifa fá- ar konur fóstur sem lifandi veru. Skröpun eða hor- mónameðferð á þessum tíma er ekki fóstureyðing í augum konunnar, heldur meðferð á síðbúinni blæð- mgu, sem verið sé að koma af stað. Það er því held- ur vafasamt að tala um líf, áður en sá, sem nærir það, skynjar tilveru þess. Stefna verður því að því, að fóstureyðingar séu gerðar sem fyrst á meðgöngulímanum, bæði vegna konunnar og umhverfis hennar og þeirra, sem eiga að framkvæma aðgerðina. „Fóstureijðinijtir eru í antlstöðu við siðfrteði ltehna“ Siðfræði lækna er breytileg, og hluíverk hennar hlýtur alltaf að vera það, að koma sem flestum að haldi. Frumskylda hvers læknis hlýtur að vera sú, að hjálpa fólki í vandræðum bæði líkamlegum og andlegum en ekki að vera dómari í málum þess. „Fóstureyðintjar leiða til auhins lausltetis“ Á síðari tímum hefur orðið nokkur breyting á lifn- aðarháttum fólks. Betri getnaðarverjur hafa gjör- breytt viðhorfinu til kynlífsins. Kynferðismál eru ekki lengur slíkt feimnismál og þau hafa verið. Frjálsar fóstureyðingar koma í beinu framhaldi af þessari þróun, en geta á engan hátt talizt orsök. „Fóstureyðintjar eru í andstöðu við náttúrulöymálin“ HvaSa náttúrulögmál? Samkvæmt náttúrulög- málum ætti konan að vera ófrísk mestan hluta af frjósömu æviskeiði sínu. Mikill hluti af tima lækna fer í það að brjóta þetta lögmál, með útgáfu lyfseðla fyrir pilluna, uppsetningu á lykkjunni o. fl. o. fl. „Konan verður að bera ábyryð á yjörðum sínum“ Hafi einhverjum orðið á glappaskol, verða mis- tökin ekki minni eða viðráðanlegri með því að nýr einstaklingur fæðist í heiminn. Það er líka vafa- söm röksemd, að refsa eigi einum með því að láta annan fæðast. Hætt er við, að slík refsing komi nið- ur á miklu fleirum en stúlkunni kærulausu, svo sem á barninu, og nánasta umhverfi hennar. læknaneminn 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.