Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1973, Side 30

Læknaneminn - 01.07.1973, Side 30
„Starfsfólh á sjúhrahásum cv mói- fallið tiðgcrðinni, htcði gynchológar og hjáhrunarhonur“ Erfitt er að viðurkenna, að tilfinningar starfsfólks séu nægileg rök gegn fóslureyðingum. Ekki er hætt við nauðsynlegar aðgerðir vegna þess að starfsfólk sé þeinl andsnúið. Margt bendir líka til að viðhorf- in séu að breytast. Þeir árgangar, sem t. d. eru nú í læknadeild, líta fóstureyðingu miklu frjálslyndari augum en þeir, sem voru í henni fyrir nokkrum ár- um. Þannig ælti skortur á hæfu starfsfólki ekki að vera fyrir hendi nema kannski allra fyrst. Til að minnka ónot hjá læknum og hjúkrunarfólki ber að stefna að því, að fóslureyðingar séu framkvæmdar sem allra fyrst, helzt fyrir lok 12. viku meðgöngu- tíma og með sogaðgerðinni. - „Fósturcyðingar stefna antllegu heilbrigði inóðurinnar í stórhaettu“ Margar kannanir hafa verið gerðai' á þessu er- lendis. Þær hníga flestar að sama brunni. Ahrif fóstureyðinga á andlega líðan og geðheilbrigði móð- ur eru fyrst og fremst háð geðheilsu hennar fyrir þungunina og þeim aðstæðum, sem hún býr við og lífsviðhorfum hennar. Framkvæmd fóstureyðingar og viðhorf þeirra, sem að henni standa, skipta líka miklu máli svo og almenningsálitið. Þýðingarmest er geðheilsa konunnar fyrir þung- unina. Idafi hún verið góð eru áhrif fóstureyðingar sem slíkrar hvorki varanleg né veruleg. Sumar konur bregðast að vísu við með sektarkennd, sem þó stendur yfirleitt stutt og er sjaldnast þannig, að hún geti talizt sjúkleg. Ef geðheilbrigði móður er á hinn bóginn ábótavant cg sé jafnvel ástæðan fyrir aðgerðinni, getur hún stundum haft áhrif til hins verra og í einstaka tilfelli til hins betra. Erfitt er að segja nema fæðing hefði haft sömu áhrif í óheilla- átt ,auk vanda þess sem afkvæmið hefði skapað móð- urinni og umhverfi hennar. „Hlutvcrh niannsins er að margfaltl- ast og ujipfyllu jörðina, fóstureyðing- ar stríða gegn þessu“ „Það er ergilegt, að svo alvarlegur hlutur eins og að eignast barn skuli vera samtvinnað svo skemmti- legri athöfn sem kynferðislífi.“ (Jan Bouman og Inger Becker í litlum pésa um fóstureyðingamálið) Þessu er varla hægt að breyta. Smátt og smátt er svo það sjónarmið að verða ríkjandi, að kynferðislíf sé orðinn eðlilegur þáttur í ánægjuleit mannsins, og fyrst og fremst honum lil skemmtunar. Barneignir eru alvarlegri hlutur sem tilviljanir og mistök eiga ekki að ráða um. Ef fólk hefur samfarir sér til skemmlunar eingöngu en stendur uppi með vísi að barni eftir á, á að vera hægt að leiðrétta slík mistök fyrirhafnarlítið. „Fóstureyðingar stríða gegn 5. hoð- orðinu, t»á shalt ehhi mttnn deyða“ Það stendur hvergi í biblíunni né í trúarsiðum Gyðinga, að þetta boðorð hafi e-ð að gera með fóstureyðingar. „Fóstureyðingar eru í andstöðu við siðfreeði hirhjunnar“ Biblían ræðir hvergi um fóstureyðingar, og ætti því frekar að skoða málið í ljósi ýmissa annarra kenninga kristninnar, s. s. um umburðarlyndi og hjálpsemi, meðaumkun og fyrirgefningu. Þeim sem eru á móti fóslureyðingum á trúarlegum grundvelli mætti e. t. v. benda á orð frelsarans, þegar hann seg- ir: Sá yðar sem syndlaus er . . . „Fóstureyðingar drtegju ár barna- gjöfum til barnlausra hjóna (10% uf hjónahöndum) “ „Einstæðar mæður ættu að taka þá ákvörðun að gefa barn sitt, slíkt myndi skapa mikla hamingju hjá barnlausum hjónum (10-15% af hjónaböndum). Fóstureyðingar myndu minnka þessar barnagjafir.“ Á að láta konu ganga í gegnum allan meðgöngu- tímann og erfiði og óþægindi fæðingarinnar bara lil þess að skapa öðru fólki hamingju? Slíkt getur vald- ið miklum sálrænum erfiðleikum hjá móðurinni, enda hlýlur kona, sem gengur með barn sitt fullan 24 LÆKNANEMINN

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.