Ferðir


Ferðir - 01.05.1990, Side 3

Ferðir - 01.05.1990, Side 3
FERÐIR 15 LAD FERÐAFÉLAGS A K U R F Y R A R MAÍ 1990 - 49. ÁRGANGUR Frá ritnefnd Scgja má að horft sc til fortíðar í þessu hefti af Ferðum. Meginefni þess eru greinar tvær um atburði liðins tíma, ritaðar af mönnum sem báðir voru í forystusveit Ferðafélags Akureyrar. Jón Sigurgeirsson frá ffelluvaði, hinn kunni ferðagarpur er nú á níræðisaldri, ern vel en hefur aflagt ferðir um fjöll og öræfi. Margt hefur verið skrifað og birt um hina sögufrægu björgun áhafnar flugvélarinnar Geysis af Vatnajökli haustið 1950. Einn björgunarmannanna, Tryggvi Forsteinsson, birti grein um atburðinn í tímaritinu Súlum 1980, en fullyrða má, að hlutirnir séu séðir af nokkuð öðrum sjónarhóli en í fyrri skrifum í þessari áður óbirtu grein Jóns. Þormóður Sveinsson er horfinn yfir móðuna miklu fyrir nokkrum árum. Hann var einn af ötulustu liðsmönnum Ferðafélags Akureyrar og sennilega hefur enginn einn maður lagt til ntcira efni í Fcrðir en hann enda í ritnefnd nær tvo áratugi. Grein sú, sem hér er birt, kom frá hans hendi í blaðinu Degi 14. september 1939. Feim sem þessar línur ritar, er í barnsminni, hve ógnvænlegur honum þótti atburðurinn, sem lýst er í greininni þegar hann las hana haustið 1939. Hefur víst fleirum verið svo farið, því að nokkrir munu hafa orðið til að skrifa um þetta efni, bæði frá sjónar- hóli sannfræði og skáldskapar. Þakkir skulu færðar Jóni Sigurgeirssyni, sem eftirlét félaginu grein sína til birtingar og Eiríki Þormóðssyni, er heimilaði birtingu greinar föður síns svo og myndatökumönnum, Eðvarð Sigurgeirssyni og Sig- urði Hjálmarssyni. , .

x

Ferðir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.