Ferðir


Ferðir - 01.05.1990, Page 22

Ferðir - 01.05.1990, Page 22
22 F E R Ð I R Kort af Öxnadalsheiði og umhverfi Tryppaskálar. Talið er að hrossin hafi verið rekin frá Gili í Öxnadal, þjóðleiðina um dalinn og upp á heiðina, meðfram Grjótá og vestan við Grjótárhnjúk upp á brúnina sunnan Víkingsfjalls og hrapað þar niður í skálina. nokkra mcnn, sem ég hugði að gætu vísað mér til vegar, hvar hans væri að leita því ég hafði heyrt, að hann væri vandfundinn. En engan hitti ég, sem glögglega gæti vísað mér á hann. Ég lagði þó af stað sunnudagsmorgun einn í september f. ár. Ég var hálfan dag að sveima þarna um fjöllin, en árangurslaust. Ég fann ekki beinin, sem mér var sagt að ættu að sjást þar, enda gerði þoku og snjókomu þar uppi, er leið á daginn. Ég vildi þó ekki hætta við svo búið, og sunnu- daginn 20. f. m. lagði ég enn af stað. F>á gekk allt betur. Ég fann staðinn, og sá ég þá að ég hafði í fyrra gengið aðeins 30 m frá bein- unum.

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.