Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.05.1990, Qupperneq 12

Ferðir - 01.05.1990, Qupperneq 12
12 I' F H I) I lí að hafði sundur blikkið á stórum pörtum. Á þennan hálfónýta slcða var settur stóri svefnpokinn og mælingatæki úr Geysi er flugmönnum þótti nauðsyn á að kæmust með til byggða vcgna eftirmála. Með far- angri okkar var Ingigerði svo búið sæti. Björgunarflugmennirnir neituðu að yfirgefa flugvél sína, kváðust þurfa að bíða eftir heimild lil þcss. Ég rcyndi að gera þeim Ijóst, í hve miklum háska þcir voru. skjólfatalausir og allslausir uppi á jökli hundruð kílómetra frá mannabyggð. Fleiri reyndu að fá þá til að koma með en án árangurs. Shefferhundurinn sem Geysisfólkið hafði tekið ástfóstri við var eftir ósk þcss ekki skotinn. Hann fór af stað með okkur en sncri fljótt við og var þrár eins og flugmennirnir. Um klukkustund cftir að lagt var af stað kastaöi amerísk flugvél niður til okkar orðsendingu „þess farið á lcit hvort við vildutn veita flugmönnunum leiðsögn niður af jöklinum," (ckki skorti háttvísina). Peim yrði send skíði og fatnaður. Gefið var jákvætt svttr og vélin hvarf á braut að sækja skíðin. Svo mikill dragbítur var í sleðanum að þrátt fyrir besta færi beittum við fimm okkur fyrir hann. Til að sækja nú flugmennina voru scndir til baka Þorsteinn Svanhiugsson og Þór- arinn Björnsson. Drógum viö fjórir slcðann eftir það. Veðriö var kyrrt og bjart en frost nokkuö. Skíðamannalestin seig áfram og við sleðamenn á eftir. Þokubelti huldi Kistufcll og lá alllangt inn á jökul. Við gerðum okkur vonir um drykkjarföng og héldum liópinn. Skömnmu áður en komið var í þokuna birtist flugvél og kastaði hún út fallhlíf ntcð rauðum kassa hangandi neðan í. Lending tókst vel og fólkið þyrptist að með gleðilátum. Kassinn var opnaður og upp úr honum voru tíndar blöðrur og svartar töflur i kílótali ásamt ýmsu flciru svo sem; súkkulaði, vítamíntöflum, borðbúnaði o.fl. Flugfólk- ið kunni skil á þessu. þetta voru tæki til að hreinsa sjó til drykkjar. Jæja, miklu var nú til kostað. fljúga með þetta inn á Vatnajökul og ætla sjálfsagt að færa okkur sjóinn líka. Eftir þetta skiptist hópurinn; skíðafólkið hvarf inní þokubakkann en viö fjórmenningarnir urguðum sleðanum áfram. Svo hvarf dags- birtan smátt og smátt og því getur enginn trúað hvað glórulaust er á jökli í þoku og náttmyrkri. Okkar góði félagi Ingigerður bar sig eins og hetja þó stirð væri í hreyfingum vegna meiðsla. Gekk hún spöl og spöl á eftir sleðanum til að halda á sér hita. Sagðist hún þá stundum sjá í harðtroðna skíðaslóðina undir öftustu sleðariminni. Jók það öryggi okkar að við værum á réttri leið. Frostið óx með kvöldinu og útlitið versnaði. Ekki mátti tapa slóðinni. Ég þreifaði eftir henni

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.