Ferðir - 01.05.1990, Page 8
8
F E R Ð I R
* 1
Skíöamenn frá Akureyri komnir í sólskin uppi á jökli. Að baki þeim rís Kistufell
og þokan beltar sig í hlíðum þess.
Fremstur fer Vignir Guðmundsson, svo Jón Sigurgeirsson, Ólafur Jónsson
og fjórði í röðinni er Tryggvi Þorsteinsson. (Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson.)
aldrei. Sólin komin upp og heiðríkt að sjá inn á jökul, hamingjan var
ineð okkur. Það voru skjótar kveðjur, nokkrir menn höfðu fylgt
okkur og sneru kátir við en hinir sem áfram héklu voru; Tryggvi Þor-
steinsson. Olafur Jónsson. Vignir Guðmundsson. Þorsteinn Svan-
laugsson, Þórarinn frá Hátúni í Reykjavík og undirritaður. Auk
þessara fóru tveir starfsmenn Loftleiða á Akureyri Sigurður og Þrá-
inn og myndatökumaðurinn okkar og ferðagarpurinn Eðvarð Sig-
urgeirsson.
Þokubelti lá við Kistufell og teygði sig inn á jökulinn. Við bundum
upp skíðin og stungum okkur inn í þokuna á ný. Njólafeiskjum og
ull úr Reykjahlíð var dreift við slóðina sem lá í krókum um jökul-
strýtur næst fellinu. Brátt komum við í sól og sléttur jökullinn lá
framundan. Við gengum í sporaslóð með fremsta mann ávalt á t)
kaðli.
Við höfðum óljósan grun um að vera ekki meir en svo velkomnir
á slysstað. B jörgunin átti að koma að sunnan og vera eitthvað tækni-
legri en við höfðum uppá að bjóða. Klukkan var farin að ganga 11