Ferðir - 01.05.1990, Page 11
Fremsti hlutinn af flaki Geysis. Björgunarflugvélin ameríska í baksýn.
(Ljósm.: Eðvarð Sigurgeirsson.)
því að skjóta þá. Enginn hreyfði mótmælum. Ólafur hjálpaði mér við
aftökuna, við bárum eitt og eitt búr burt frá vélinni, aflífuðum þá
þar og grófum þeim öllum eina gröf.
Okkar mesta áhyggjuefni var þorstinn, hann hafði sagt til sín á
uppleiðinni og öll drykkjarílát þá tæmst. Nokkrum tíma var eytt í að
bræða snjó. Við studdumst við reynslu Geysisfólksins, notuðum
gljákrómaða kaffikönnu flugvélarinnar fyrir eldstæði. Hún var fyllt
af papparusli vættu í bensíni svo var raðað kringum hana vatnsbauk-
um og eldur borinn að. Blossaði þá upp bál mikið en var útbrunnið
áður en þýtt var í baukunum. Með þessu safnaðist þó nokkuð vatn
til heimferðarinnar. Flugfólkið kom og þáði hjá okkur krapvatn að
drekka. Tryggvi fékk komið á framfæri í gegnum talstöð björgunar-
vélarinnar orðum að okkur yrðu send drykkjarföng og að Kistufells-
búar væru beðnir að koma á móti okkur til hjálpar og hafa Ijósfæri.
Þau orð komust aldrei til skila og að drykknum kem ég síðar. Skíða-
sleða hafði verið varpað niður. Hann var með blikkfóðruðum síðum
en hafði auðsjáanlega staðið missirum saman á blautri jörð svo ryðg-