Ferðir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Ferðir - 01.05.1990, Qupperneq 19

Ferðir - 01.05.1990, Qupperneq 19
ÞORMÓÐUR SVEINSSON: Tryppaskál Þaö eru nú meira en 40 ár liðin, síðan ég heyrði fyrst getið um hrossin, sem fórust í Hörgárdalsheiðarbrúnunum. Ég var þá korn- ungur drengur. Aldrei hefi ég gleymt þeirri frásögn síðan. Aldrei hefi ég farið svo um þessar heiðar, að hugurinn hafi ekki hvarflað til hrossanna þeirra, sem biðu þarna hinn ömurlegasta dauða. Saga þess máls, sem bæði var Ijótt og erfitt viðureignar, verður ekki sögð hér. Aðeins skal þess getið að haustið 1870 vantaði Blönduhlíðinga í Skagafirði hrossahóp - nær 30, eftir því sem ég hefi heyrt - er gengu á Öxnadals- og Hörgárdalsheiðum um sumarið. Fundust þau eigi, þrátt fyrir miklar leitir, fyrr en eftir allar venjuleg- ar haustgöngur. Þá gengu af hendingu eftirleitarmenn fram á þau í gróðurlausri urðarkvos einni norðan í hábrún fjalls þess, er greinir þessar áðurnefndu heiðar, þar sem síst skyldi gripa von vera. Mun staður sá vera fulla 1100 m yfir sjó. Hrossin voru hörmulega útleikin. Flest þeirra voru dauð, sum rifin, jafnvel á hol, önnur skorin eða beinbrotin á klettanöfum og urðargrjóti. Eitthvað lifði þó enn, og hefi ég heyrt, að þau hafi orðið mannanna vör og hneggjað, áður en að þeir sáu þau. Svo hefir og verið sagt, að þau sem lifðu, hafi verið farin að éta hold hinna dauðu. Hvað lengi þau voru búin að vera þarna, ber sögum ekki saman um. Sumir segja 3 vikur, aðrir 5 eða jafnvel lengur. Þau, sem lifðu, voru skotin þarna, því að ekki var þeim lífs von talin. Síðar vitnaðist, að hrossin væru af mannavöldum komin þarna, enda liggur í augum uppi, að þangað fer ekkert hross óneytt. Urðu mikil málaferli út úr þessu. Staður þessi hefir síðan verið nefndur Tryppaskál. Atburður þessi mun nú, eftir 69 ár, vera öllum þorra manna gleymdur. Og staðurinn mun einnig flestum ókunnur, enda er hann vandlega hulinn augum vegfarandans. Mér hafði lengi leikið hugur á að sjá þennan stað. Ég spurði

x

Ferðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.