Ferðir


Ferðir - 01.05.1990, Page 25

Ferðir - 01.05.1990, Page 25
Ársskýrsla stjórnar Ferðafélags Akureyrar 1989 Starfið 1989 var með 1 íku sniði og undanfarin ár, stjórn félagsins óbreytt frá fyrra ári. Stjórnarfundir voru 14 og vel mætt á þá. Mál ársins var úrlausn á húsnæðis- vanda félagsins, búið var að athuga nokkra staði, en á stjórnarfundi 8. jan. var ákveðið að kaupa útbyggingu við Strandgötu 23, það húsnæði sem við erum í nú, en kaupunum fylgdu skúrar bakatil og kjallari í aðalhúsi. Samið var við útibússtjóra Iðnaðarbankans um kaupin og var verðið kr. 1.200.000,00, útborgun kr. 300.000,00 og eftirstöðvar á skuldabréfi til 8 ára. Lagfæringar hófust 27. mars með því að skipt var um skrá í aðalhurð, eins og segir í Jakobsbíblíu, vinnan síðan aukin smátt og smátt, og komu þar margir við sögu. Húsnæðið st'ðan tekið í notkun með opnu húsi 4. júní. Skrifstofan var opin að vanda daglega frá kl. 16-19, mánuðina júní til ágúst og þar ráðin Guðbjörg Sigurðardóttir. Félagið keypti 2 Lödur til nota í Herðubreiðarlindum og Dreka á kr. 60.000,00 hvora, en bflastyrkur sem Náttúruverndarráð hefur greitt til land- vörslu gekk til félagsins upp í kaupin. Stjórnin hélt sviðamessu að venju og var hún í Laugaborg 30. sept. og fjöl- skyldukvöld í október, á sama stað. í samráði við Náttúruverndarráð var ráðið í 3 stöður á austurfjöllum, og greiddi ráðið hálf laun á móti félaginu. í Lindum voru Kári Kristjánsson 21/6- 2/9, Ragnheiður Jónsdóttir 26/6-21/7 og Bjarni Guðmundsson 18/7-18/8, en í Dreka Fjóla Helgadóttir. Skýrslur nefnda verða fluttar hér á eftir og þar kemur fram allt það helsta sem þær hafa afrekað á árinu, en nefndirnar eru: Ferðanefnd, form. Ragn- hildur Bragadóttir; Laugafélagsnefnd, form. Angantýr Hjálmarsson; Dreka- nefnd, form. Magnús Tryggvason; Þorsteinsskálanefnd og Strýtu, form. Haukur fvarsson; Ritnefnd, form. Guðmundur Gunnarsson; Bræðrafells- og Lambanefnd, form. Jakob Kárason, einnig verða fluttar skýrslur skálavarða: Þetta er það helsta úr starfinu, en að lokum færir stjórnin öllum starfsmönn- um sínum bestu þakkir fyrir vel unnin störf.

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.