Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Qupperneq 32
32 | | 1. júní 2023
„Á þessum tímamótum er við
hæfi að horfa til framtíðar og
íhuga hvað það er sem þið viljum
skilja eftir en umfram allt hvað
þið viljið taka með ykkar og vinna
áfram með. Við búum í samfé-
lagi þar sem hraðinn er sífellt að
aukast. Við vitum að til þess að
ráða við þennan hraða verðum
við að styrkja seiglu einstakling-
anna. Þeir sem geta brugðist við
áföllum í framtíðinni verða að búa
yfir seiglu til að geta tekist á við
það óvænta,“ sagði Thelma Björk
Gísladóttir, aðstoðarskólameistari
og staðgengill skólameistara í
skólaslitaræðu sinni.
Hún sagði að með vexti og tækni-
breytingum stöndum við frammi
fyrir krefjandi viðfangsefnum.
Finna þurfi út hvernig við árangur
náist í umhverfi sem þróast með
þessum mikla hraða sem hafi
veruleg áhrif á samfélagið og
stóran hóp einstaklinga, bæði í
einkalífinu sem og atvinnulífinu.
Þar spili gervigreindin sem „allt“
veit er mætt á svæðið.
Nám og upplifanir
„Fara kennarar að verða óþarfir?
Ég segi, grípum frekar tækifær-
ið. Gervigreindina er hægt að
nýta til að byggja upp öflugri
ferla, bæta vinnubrögð og hraða
skipulagsbreytingum. Það undir
okkur komið að skapa rými og
öðlast dýpri og meiri þekkingar
á gervigreindinni. Forðumst ekki
breytingar, fögnum þeim. Með
tilkomu gervigreindarinna þurfum
við að geta unnið enn þéttar
saman í teymum til að nýta þá
tæknilegu og stafrænu þætti sem
okkur bjóðast nú. Við þurfum að
byggja upp þekkingu og getu til
að gera betur og ná þannig for-
skoti,“ sagði Thelma Björk.
Hún sagði það skyldu skólans að
horfa fram á veginn, undirbúa fólk
fyrir framtíðina og miðla þeirri
sýn til unga fólksins. Á hverju ári
sé lagt upp með að gera það sem
best er fyrir alla og tryggja nem-
endum við skólann öflugt nám,
upplifanir sem stuðla að þroska,
auka víðsýni og efla sjálfstæða
hugsun.
„Að læra hvernig á að hugsa
þýðir í raun að læra hvernig er
best að hafa einhverja stjórn á
því hvernig og hvað við hugsum.
Við þurfum að vera meðvituð
til að velja það sem skiptir máli
og hvernig við byggjum upp
merkingu út frá reynslu. Menntun
er fyrst og fremst fólgin í eflingu
dómgreindar sem er hæfileiki til
að fella dóma um gildi hlutanna.
Við þurfum sem einstaklingar að
þekkja gildin sem við stöndum
fyrir og hvernig við getum best
ræktað þau. Með þeirri þekkingu
náum við að byggja upp verðmæti
fyrir okkur sjálf og fyrir samfé-
lagið sem við búum í.“
Í ávarpi til nemenda sagði hún
það forréttindi að fá að vinna með
ungu fólki og aðstoða það við að
finna sér leið í lífinu. „Ég trúi því
að þið sem eruð hér upp á sviði í
dag búið yfir seiglu, þið skiljið nú
betur mikilvæg gildi samfélagsins
og þið hafið myndað ykkar eigin.
Með menntun síðustu ára hefur
dómgreind ykkar vaxið, þið hafið
þroskast sem einstaklingar og sem
eflst sem námsmenn.
Það er von mín, að sem mest af
því sem þið hafið lært og tileinkað
ykkur í skólanum megi vera ykkur
til gagns þegar þið stígið skrefið
út úr skólanum hér á eftir og inn í
framtíðina.“
Á öðrum stað sagði Thelma
Björk: „Ykkar munu bíða
krefjandi verkefni, framtíð
samfélagsins liggur í höndum
ykkar. Viðhaldið tengslunum
og vináttunni til hvers annars.
Þó svo að þessi dagur sé ykkar
síðasti í Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum þá eruð þið alla
ævi nemendur skólans. Skólinn
er stoltur af ykkur og ég veit að
þið eruð stolt af ykkar skóla,“
sagði Thelma Björk sem að lokum
þakkaði nemendum, foreldrum og
starfsfólkið samstarfið á önninni.
Viður-
kenningar
á vorönn
Breki Óðinsson, Richard
Óskar Hlynsson, Sunna
Einarsdóttir, Thelma
Sól Óðinsdóttir, Elísa
Elíasdóttir, Emelia Ögn
Bjarnadóttir, Helena
Jónsdóttir og Þóra Björg
Stefánsdóttir tóku öll þátt
í Íþróttaakademíu ÍBV
og FÍV.
Danska sendiráðið veitti
Þóru Björg Stefánsdóttur
viðurkenningu fyrir
mjög góðan árangur í
dönsku. Skólinn veitti
Katrínu Báru Elíasdóttur
viðurkenningu fyrir mjög
góðan árangur í spænsku
og Elísu Elíasdóttur
viðurkenningu fyrir mjög
góðan heildarárangur í
félagsvísindagreinum á
stúdentsprófi. Drífandi
stéttarfélag veitti Breka
Þór Óðinssyni, Guð-
björgu Sól Sindradóttur
og Sunnu Einarsdóttur
verðlaun fyrir félagsstörf
á vegum skólans.
Skólinn veitti Helenu
Jónsdóttur verðlaun fyrir
mjög góðan árangur í
íslensku á stúdentsprófi.
Þóra Björg Stefánsdóttir
fékk viðurkenningu frá
Stærðfræðifélagi Íslands
fyrir framúrskarandi
heildarárangur á stúd-
entsprófi. Elísa Elíasdótt-
ir hlaut Menntaverðlaun
Háskóla Íslands fyrir
framúrskarandi árang-
ur á stúdentsprófi og
eftirtektarverða þátttöku
í íþróttum. Þóra Björg
Stefánsdóttir hlaut
Raungreinaverðlaun
Háskólans í Reykjavík
fyrir framúrskarandi
árangur í raungreinum á
stúdentsprófi.
Skólinn veitti Birki
Frey Ólafssyni og Elísu
Elíasdóttur viðurkenn-
ingu fyrir mjög góðan
heildarárangur á stúd-
entsprófi. Bæði voru með
8,7 í einkunn. Loks veitti
skólinn Þóru Björgu
Stefánsdóttur viðurkenn-
ingu
fyrir frábæran heildarár-
angur á útskriftarprófi,
9,2 í meðaleinkunn.
Thelma Björk, aðstoðarskólameistari FÍV:
Framtíð samfélagsins liggur
í höndum ykkar
Semidúxarnir, Elísa Elíasdóttir og Birkir Freyr Ólafsson.
Þóra Björg Stefánsdóttir, dúx á vorönn með 9,2 í meðaleinkunn.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is