Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Síða 35

Fréttir - Eyjafréttir - 01.06.2023, Síða 35
1. júní 2023 | | 35 Ísfell óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með sjómannadaginn Kvennalið ÍBV þurfti að sætta sig við silfur í úrslitaeinvíginu um Ís- landsmeistaratitilinn í handbolta. Eyjastúlkur lutu í lægra haldi fyrir Valskonum 3-0. Tímabilið hefur verið frábært hjá stelpunum sem urðu bæði bikar- og deildar- meistarar í vetur. Sunna Jónsdóttir fyrirliði liðsins sagði í samtali við Eyjafréttir ekki geta annað en verið ánægð með tímabilið. „Bikarmeistarar, deildarmeist- arar og silfur á Íslandsmóti er frábær árangur og ég hefði alltaf tekið því fyrir tímabilið. Auðvitað hefðum við kannski viljað spila betur í úrslitakeppninni en þar vitum við nokkurn vegin hvað fór úrskeiðis þannig að þá er allavega tækifæri til að læra af og gera betur fyrir næstu ár. Fyrst og fremst er ég líka bara svo ótrúlega stolt og þakklát fyrir að fá að vera hluti af þessum frábæra hóp sem liðið er, fá að vera hluti af ÍBV íþróttafélagi og umgjörðinni í kringum okkur og síðast en alls ekki síst stuðningnum sem við fáum. Loksins náðum við að láta stóra drauminn rætast og vinna bikar. Við höfum lagt hart að okk- ur og náðum að uppskera en það hefði aldrei gerst nema með öllu þessu góða fólki í kringum okkur. Stuðningurinn og samheldnin skilaði okkur langt í vetur og það er bara ólýsanlegt og ómetanlegt að fá að vera partur af þessu öllu saman og upplifa þetta. Sunna segist vera bjartsýn á fram- haldið. „Við höldum svipuðum hóp. Ungar stelpur sem hafa verið í stórum hlutverkum hjá okkur í vetur eru reynslunni ríkari. Við bætum við okkur og ætlum að auka breiddina. Það eru ungar og efnilegar stelpur farnar að banka léttilega á dyrnar. Þannig fram- tíðin er björt og spennandi. Það þarf að halda áfram því starfi sem hefur verið undanfarin tímabíl og gera enn betur. Við ætlum okkur alltaf lengra og hærra.“ Kolbrún Ingólfsdóttir, Hilmar Ágúst Björnsson, Sigurður Bragason, Ester Óskarsdóttir, Birna Berg Haraldsdóttir, Sara Margrét Örlygsdóttir, Ólöf Maren Bjarnadóttir, Ólöf María Stefánsdóttir, Sunna Jónsdóttir, Amelía Dís Einarsdóttir, Ásta Björt Júlíusdóttir, Elísa Elíasdóttir og Guðmundur Ásgeir Grétarsson. Neðri röð Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Marta Wawrzynkowska, Karolina Anna Olszowa, Björn Brynjar Björnsson, Tara Sól Úranusdóttir, Sara Dröfn Rikharðs- dóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Ingibjørg Olsen og Bríet Ómarsdóttir. Tveir af þremur titlum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.