Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Side 2
Sigurhanna Friðþórsdóttir með-
limur í goslokanefnd var í samtali
við Eyjafréttir ánægð með hvernig
til tókst. „Goslokanefnd er í skýj-
unum með Goslokahátíð 2023.
Þetta var í fyrsta sinn sem hátíðin
stóð í heila viku og veitti ekki af
miðað við fjölda viðburða.“
Gekk hreinlega allt upp
Aðspurð að því hvað hafi staðir
upp úr í hennar huga var Sig-
urhanna ekki í vafa. „Það sem
stendur upp úr er veðrið og
fólkið. Gestirnir okkar voru til
fyrirmyndar í einu og öllu og
þrátt fyrir að þetta hafi verið með
fjölmennari Goslokahátíðum, ef
ekki sú fjölmennasta, þá gekk
hreinlega allt upp.“
Hún segir veðrið hafi átt sinn þátt
í því hvernig til tókst. „Veðrið
spilar auðvitað stóran þátt þar sem
fjöldi viðburða fór fram utandyra
og metþátttaka var í þeim flest-
um.“ Sigurhanna segir það hafa
verið erfitt fyrir nefndarmenna að
taka þátt í öllu því sem var í boði.
„Ég reyndi mitt besta til að mæta
á sem flesta viðburði. Trúlega náði
ég um 90% þeirra en ég stoppaði
yfirleitt stutt á hverjum stað. Oft
hefði verið gaman að hafa meiri
tíma til að spjalla því suma hafði
ég ekki hitt lengi.“
Sum gagnrýni átti rétt á sér
Töluverð umræða var um dag-
skrána í aðdraganda hátíðarinnar,
fannst þér sú umræða sanngjörn,
hvernig horfði það við þér? „Auð-
vitað hefur fólk ólíkar skoðanir
á hvernig Goslokahátíð eigi að
vera. Sum gagnrýni átti alveg rétt
á sér en annað fannst mér dálítið
ósanngjarnt. Goslokahátíð er
þakkargjörðar- og menningarhátíð
Vestmannaeyinga og því finnst
mér nauðsynlegt að minning-
um og viðburðum sem tengjast
Heimaeyjargosinu séu gerð góð
skil. Þá finnst mér mikilvægt að
heimafólk eigi sviðið því hér er
fullt af hæfileikaríku listafólki á
öllum aldri. Auðvitað er gaman
að fá gesti af fastalandinu, hvort
sem er til að skemmta eða njóta,
en það á ekki að vera aðalatriðið
að hafa stór nöfn í dagskránni, til
þess höfum við Þjóðhátíð.
Goslokanefnd óskaði að venju
eftir hugmyndum frá bæjarbúum.
Allar hugmyndir sem bárust voru
skoðaðar og sumar framkvæmd-
ar en ákveðið að geyma aðrar.
Ég veit að mörg dreymir um
að endurvekja stemmninguna í
Skvísusundi en það er eins og
með bekkjabílana, lög og reglu-
gerðir heimila ekki slíkt í dag,
ólíkt því sem áður var.
Ég vil hvetja þau sem hafa
hugmyndir og/eða athugasemdir
um það sem betur má fara að
senda línu á goslok@vestmanna-
eyjar.is Því fyrr því betra, það er
auðveldara að bregðast við ef fyr-
irvarinn er góður. Goslokanefnd
hefur úr ákveðnu fjármagni að
spila og reynir sitt besta til að nýta
það vel en trúlega gerir fólk sér
ekki grein fyrir ýmsum duldum
kostnaði sem fellur til. Markmiðið
hefur verið að hafa frítt inn á þá
viðburði sem skipulagðir eru af
goslokanefnd en auðvitað verða
aðrir að ráða hvernig þeirra við-
burðir eru verðlagðir.“
Hún segir þakklæti vera sér efst
í huga eftir hátíðina. „Jákvæðir og
glaðir gestir og frábært samstarfs-
fólk gerði alla fyrirhöfnina og
vinnuna vel þess virði. Ég er strax
farin að hlakka til næstu Gosloka-
hátíðar sem haldin verður 3.-7.
júlí 2024.“
Útgefandi: Eyjasýn ehf. - kt. 480278-0549
Ægissgötu 2 - 900 Vestmannaeyjum.
Ritstjórn og ábyrgð: Ómar Garðarsson og Sindri
Ólafsson - omar@eyjafrettir.is - sindri@eyjafrettir.is.
Umbrot: Leturstofa Vestmannaeyjum ehf.
Ljósmyndir: Blaðamenn Eyjafrétta.
Prentun: Stafræna Prentsmiðjan ehf.
Sími: 481 1300
Netfang: frettir@eyjafrettir.is.
Auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is
Veffang: www.eyjafrettir.is
EYJAFRÉTTIR er áskriftarblað.
Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Sigurhanna gekk á Heimaklett ásamt um 50 manns undir öruggri leiðsögn
þeirra félaga Svavars og Péturs Steingrímssona.
Goslokahátíð er þakkargjörðar- og menningarhátíð Eyjamanna:
Strax farin að hlakka til næstu hátíðar
Á G O S L O K U M M E Ð A D D A Í L O N D O N