Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Blaðsíða 19
20. júlí 2023 | | 19 eldisfyrirtækisins sem er verið að setja á stofn hérna í Eyjum og hélt kynningu fyrir krakkana og sýndi þeim framtíðaratvinnumöguleika í sjávarútveginum í Vestmanna- eyjum. Katla segir heimsóknir í fyrirtæki er mikilvægan part af Sjávarút- vegsskólanum. „Þar sjá krakkarnir starfsemina með eigin augum og geta þá vonandi tengt það við námsefnið sem við sýnum þeim. Krakkarnir virtust mjög sáttir með vikuna. Þetta var mjög skemmti- legur og þægilegur hópur sem spurði spurninga og mörg þeirra áhugasöm.“ Ánægjulegt að koma til Eyja Annað efni sem kennt er í skól- anum hefur verið sett saman af kennurum og verkefnastjórum sjávarútvegsmiðstöðvarinnar. „Þar erum við t.d. að útskýra fyrir þeim grunnatriði sjávar- útvegsins, hversu miklu stærri vettvangur þetta er heldur en bara sjómennska og fiskvinnsla. Við förum yfir sögu sjávarútvegsins og þróun hans í gegnum tíðina, hversu mikilvæg auðlind þetta er fyrir landið okkar, segjum frá helstu skipum og veiðarfær- um, förum vel yfir gæðamál og mikilvægi þeirra. Nýsköpun í sjávarútvegi fer sífellt vaxandi og erum við með kynningu á nýtingu hráefnisins og segjum frá fyrirtækjum sem vinna vörur úr hliðarafurðum o.fl. Við horfum jú auðvitað á þessa kynslóð sem framtíðina og er okkar markmið að halda fast í okkar fólk til að halda sjávarútveginum í stans- lausri uppbyggingu. Það var ánægjulegt að koma með skólann til Eyja og vonandi verða Vest- mannaeyjar einn af okkar föstu viðkomustöðum í framtíðinni,“ sagði Katla. Katla segir það hafa verið sérstakt fyrir sig að koma með skólann til Eyja. „Ég hef t.d. unnið bæði hjá Ísfélaginu á vertíð og vann í VSV lengi vel í humar-, uppsjávar- og bolfiskvinnslu. Fyrir mig var auðvitað mjög áhugavert að sjá hversu miklar breytingar og nýjungar hafa átt sér stað á stuttum tíma. Ég tók líka eftir því miðað við aðra staði, hversu mikið meira er af fyrirtækjum í Eyjum að vinna í tengslum við sjávarútveginn en ég gerði mér í rauninni grein fyrir. Ég myndi klárlega vilja hafa lengri dagskrá næst,“ sagði Katla að lokum. Haft mikinn áhuga á sjó- mennsku síðan ég var krakki Gunnar Páll Elvarsson var meðal nemenda í Sjávarútvegsskóla unga fólksins í Vestmannaeyjum Gunn- ar Páll var að ljúka við 9. bekk en er þó ekki þáttakandi í vinnuskól- anum en hann hefur unnið á golf- vellinum og í Krónunni í sumar. Hann hafði þó mikinn áhuga á því að taka þátt þegar hann komst að því að skólinn væri á leiðinni til Eyja. „Pabbi aðstoðaði mig við að komast í samband við þau og það var ekkert mál að fá að vera með þó að þetta sé bara fyrir þá sem eru í vinnuskólanum.“ Gunnar Páll segir það vera mikinn áhuga sinn á sjómennsku sem hafi rekið hann af stað í þetta. „Ég hef haft mikinn áhuga á sjómennsku síðan ég var krakki.“ Hann segir áhugann síður en svo hafa minnkað eftir þetta nám. „Þetta var mjög gaman og fróðlegt allt.“ Hann segist staðráðinn í því að fara í stýrimannaskólann þegar hann verður eldri. Hvað er það sem er svona spennandi við sjómennskuna? „Bara fara á sjó og vinna við fisk, mig hefur bara alltaf langað til að gera það.“ Gunnar Páll segir nokkuð um sjómenn í kringum sig. „Pabbi var á sjó lengi og langafi minn var í útgerð og svo á ég marga frændur sem eru sjómenn.“ Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur aðeins fengið að finna smjörþef- inn af sjómennskunni. „Ég fékk að fara með í einn loðnutúr á Ísleifi VE. Það var mjög gaman að fá að taka þátt í því.“ Aðspurður um það hvað hefði staðið upp úr í skólanum var okkar maður ekki í nokkrum vafa. „Það var mjög gaman að læra um mismunandi veiðafæri og fisktegundir. Af þeim stöðum sem við heimsóttum fannst mér áhugaverðast að skoða Heimaey og að skoða uppsjávarvinnsluna hjá Ísfélaginu.“ Sjómaðurinn ungi sagðist hafa verið mjög ánægður með þessa daga og mælir með Sjávarútvegs- skóla unga fólksins fyrir alla. Sverrir tók á móti nemendum í Vinnslustöðinni. Nemendur vinna skynmat á fisk. Mismunandi aðferðum var beitt við skynmat. Strákarnir voru ánægðir með sjó- ferðina á Þór. Gunnar Páll með Halldóri Inga um borð í Ísleifi VE.Hluti hópsins að lokinni útskrift.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.