Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Qupperneq 19
20. júlí 2023 | | 19
eldisfyrirtækisins sem er verið að
setja á stofn hérna í Eyjum og hélt
kynningu fyrir krakkana og sýndi
þeim framtíðaratvinnumöguleika
í sjávarútveginum í Vestmanna-
eyjum.
Katla segir heimsóknir í fyrirtæki
er mikilvægan part af Sjávarút-
vegsskólanum. „Þar sjá krakkarnir
starfsemina með eigin augum
og geta þá vonandi tengt það við
námsefnið sem við sýnum þeim.
Krakkarnir virtust mjög sáttir með
vikuna. Þetta var mjög skemmti-
legur og þægilegur hópur sem
spurði spurninga og mörg þeirra
áhugasöm.“
Ánægjulegt að koma til Eyja
Annað efni sem kennt er í skól-
anum hefur verið sett saman af
kennurum og verkefnastjórum
sjávarútvegsmiðstöðvarinnar.
„Þar erum við t.d. að útskýra
fyrir þeim grunnatriði sjávar-
útvegsins, hversu miklu stærri
vettvangur þetta er heldur en bara
sjómennska og fiskvinnsla. Við
förum yfir sögu sjávarútvegsins
og þróun hans í gegnum tíðina,
hversu mikilvæg auðlind þetta
er fyrir landið okkar, segjum
frá helstu skipum og veiðarfær-
um, förum vel yfir gæðamál og
mikilvægi þeirra. Nýsköpun í
sjávarútvegi fer sífellt vaxandi
og erum við með kynningu á
nýtingu hráefnisins og segjum frá
fyrirtækjum sem vinna vörur úr
hliðarafurðum o.fl. Við horfum
jú auðvitað á þessa kynslóð sem
framtíðina og er okkar markmið
að halda fast í okkar fólk til að
halda sjávarútveginum í stans-
lausri uppbyggingu. Það var
ánægjulegt að koma með skólann
til Eyja og vonandi verða Vest-
mannaeyjar einn af okkar föstu
viðkomustöðum í framtíðinni,“
sagði Katla.
Katla segir það hafa verið
sérstakt fyrir sig að koma með
skólann til Eyja. „Ég hef t.d.
unnið bæði hjá Ísfélaginu á vertíð
og vann í VSV lengi vel í humar-,
uppsjávar- og bolfiskvinnslu. Fyrir
mig var auðvitað mjög áhugavert
að sjá hversu miklar breytingar
og nýjungar hafa átt sér stað á
stuttum tíma. Ég tók líka eftir
því miðað við aðra staði, hversu
mikið meira er af fyrirtækjum í
Eyjum að vinna í tengslum við
sjávarútveginn en ég gerði mér
í rauninni grein fyrir. Ég myndi
klárlega vilja hafa lengri dagskrá
næst,“ sagði Katla að lokum.
Haft mikinn áhuga á sjó-
mennsku síðan ég var krakki
Gunnar Páll Elvarsson var meðal
nemenda í Sjávarútvegsskóla unga
fólksins í Vestmannaeyjum Gunn-
ar Páll var að ljúka við 9. bekk en
er þó ekki þáttakandi í vinnuskól-
anum en hann hefur unnið á golf-
vellinum og í Krónunni í sumar.
Hann hafði þó mikinn áhuga á því
að taka þátt þegar hann komst að
því að skólinn væri á leiðinni til
Eyja. „Pabbi aðstoðaði mig við að
komast í samband við þau og það
var ekkert mál að fá að vera með
þó að þetta sé bara fyrir þá sem
eru í vinnuskólanum.“
Gunnar Páll segir það vera
mikinn áhuga sinn á sjómennsku
sem hafi rekið hann af stað í þetta.
„Ég hef haft mikinn áhuga á
sjómennsku síðan ég var krakki.“
Hann segir áhugann síður en svo
hafa minnkað eftir þetta nám.
„Þetta var mjög gaman og fróðlegt
allt.“ Hann segist staðráðinn í því
að fara í stýrimannaskólann þegar
hann verður eldri.
Hvað er það sem er svona
spennandi við sjómennskuna?
„Bara fara á sjó og vinna við fisk,
mig hefur bara alltaf langað til
að gera það.“ Gunnar Páll segir
nokkuð um sjómenn í kringum
sig. „Pabbi var á sjó lengi og
langafi minn var í útgerð og svo
á ég marga frændur sem eru
sjómenn.“
Hann hefur þrátt fyrir ungan aldur
aðeins fengið að finna smjörþef-
inn af sjómennskunni. „Ég fékk
að fara með í einn loðnutúr á
Ísleifi VE. Það var mjög gaman að
fá að taka þátt í því.“
Aðspurður um það hvað hefði
staðið upp úr í skólanum var
okkar maður ekki í nokkrum
vafa. „Það var mjög gaman að
læra um mismunandi veiðafæri
og fisktegundir. Af þeim stöðum
sem við heimsóttum fannst mér
áhugaverðast að skoða Heimaey
og að skoða uppsjávarvinnsluna
hjá Ísfélaginu.“
Sjómaðurinn ungi sagðist hafa
verið mjög ánægður með þessa
daga og mælir með Sjávarútvegs-
skóla unga fólksins fyrir alla.
Sverrir tók á móti nemendum í Vinnslustöðinni.
Nemendur vinna skynmat á fisk.
Mismunandi aðferðum var beitt við
skynmat.
Strákarnir voru ánægðir með sjó-
ferðina á Þór.
Gunnar Páll með Halldóri Inga um
borð í Ísleifi VE.Hluti hópsins að lokinni útskrift.