Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Blaðsíða 7
20. júlí 2023 | | 7
minn af þessu er að það er mikill
áhugi fyrir því á goslokahátíð að
vera með skemmtun fyrir fólk
sem man eftir gosinu og minnir á
gamla daga” segir Kristín.
„Þetta er alltaf heilmikill undir-
búningur, bæði náttúrulega að
gera salinn að tónleikasal og svo
bara þetta að það þarf að vera í
sambandi við alla og sjá um að
manna vaktir. Ég var svo ánægð
með fólkið sem var að performera
hjá mér, hvað þau voru pro og
flott og skemmtileg. Við þurftum
að gera smá breytingar á dagskrá
en það lögðust allir á eitt með að
láta það ganga upp og það var
bara hið besta mál” segir Kristín
og bætir við að aðsóknin í sjálft
safnið hafi verið mjög góð.
Rifna úr Eyjastolti
Á Skipasandi skemmti fólk sér
eins og best verður á kosið og
stigu þar á svið nánast eingöngu
Eyjamenn. En það voru hljóm-
sveitirnar Mucky Muck, Molda,
Memm og Brimnes, Leikfélag
Vestmannaeyja og aðkomumað-
urinn Séra Bjössi sem sáu um að
kæta mannskapinn. Hægt var að
sækja sér mat og drykk og var
Slippurinn meðal annars með
heilgrillað lamb á boðstólum.
„Við stigum síðastir á stokk í
Ráðhúslundinum í bongóblíðu
og svo vorum við fyrstir á svið á
Skipasandi” segir Arnar Júlíusson,
söngvari og gítarleikari í grugg-
bandinu Mucky Muck. Hann lýsir
stemningunni á Skipasandi sem
áþreifanlegri.
„Það tókst ótrúlega vel að spila
að okkar hálfu enda vorum við
Mucky menn vel æfðir. En auð-
vitað getur ekkert gerst nema með
fagfólk bakvið tjöldin og eiga því
Höddi og félagar mikið hrós skilið
fyrir þeirra framlag. Það er þeim
að þakka að fólk naut sín eins og
það gerði.”
„Að fá að spila á hátíðum okkar
Eyjamanna eins og á Gosloka-
hátíðinni eða á Þjóðhátíð er ein-
faldlega toppur tilverunnar. Það
hefur ótrúlega mikil áhrif á grósku
tónlistarmenningar eyjunnar að
veita hljómsveitum okkar tækifæri
til þess að koma fram á þessum
hátíðum og á goslokanefnd mikið
hrós skilið fyrir hátíðina í ár, þar
sem fimm eyjasveitir komu fram
og sýnir það að við eigum nóg af
hæfileikaríkum tónlistarmönnum
á eyjunni.”
„Það sem stendur helst upp úr
goslokunum hjá mér er einfald-
lega sú staðreynd að við búum yfir
ótrúlegu magni af hæfileikaríku
listafólki og vona ég innilega
að við nýtum þetta frábæra fólk
betur, eins og var gert á þessari
goslokahátíð” segir Arnar og
bætir við að hann sé að rifna úr
Eyjastolti.
Tæplega fimmtíu manns skelltu sér upp Heimaklett með Svabba og Pétri
Steingríms á laugardeginum.
Goslokalitahlaup Ísfélagsins var einstaklega vel heppnað.
Bjössi Ella, Hemmi Hreiðars og David James í góðum gír á Skipasandi.
Vinirnir Aron Hrafnsson og Óliver Friðriksson seldu glæsilegar
teikningar fyrir fáeina aura.
Hjónin Ingi Júlíusson og Guðlaug Hjelm við setningu hátíðarinnar
á Skansinum.