Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Side 4
4 | | 20. júlí 2023
Alltaf að hlusta á mömmu sína
E Y J A M A Ð U R I N N
Sunna Einarsdóttir, var yngst
þeirra myndlistamanna með
sýningu á dagskrá Gosloka-
hátíðar í ár. Sunna er aðeins
átján ára að aldri og opnaði
sýningu sína í Craciouskró
þann 5. júlí sl. við góðar undir-
tektir. Síðustu ár hefur Sunna
verið að teikna
grískar styttur og meðal
annars fengið innblástur frá
grískum byggingarstíl. Þetta
er ekki í fyrsta skiptið sem
Sunna heldur sýningu en verk-
in hennar voru lengi vel uppi á
Hótel Vestmannaeyjar
þegar hún var aðeins tólf ára.
Sunna á augljóslega mikið inni
og það verður spennandi að
fylgjast með listamannaferli
hennar í framtíðinni.
Fullt nafn: Sunna Einarsdóttir.
Fæðingardagur: 27. nóvember
2004.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Fjölskylda: Foreldrar mínir heita
Einar Björn Árnason og Bryndís
Einarsdóttir. Stóra systir mín
heitir Margrét Íris og tvíburabróðir
minn Dagur.
Aðaláhugamál: Að teikna og búa
til list.
Uppáhalds app: Instagram.
Uppáhalds hlaðvarp: Teboðið.
Síðasta hámhorf: Desperate
Housewives og Love Island.
Uppáhalds matur: Kjötsúpan sem
amma mín Margrét gerir.
Versti matur: Skata.
Hvað óttastu: Hef alltaf verið mjög
myrkfælin.
Mottó í lífinu: Alltaf að hlusta á
mömmu sína.
Eitthvað sem þú gerir á hverjum
degi sem þú gætir ekki verið án:
Verð ómöguleg ef ég tek
mér ekki góðan beauty blund.
Hvern myndir þú vilja hitta úr
mannkynssögunni: Michelangelo
svo ég gæti lært af honum
og Freddie Mercury.
Hvaða bók lastu síðast: Ég
neyddist til að lesa The Tattooist of
Auschwitz í skólanum, svo kom
í ljós að þetta var bara frábær bók.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Granit Xhaka og
Arsenal.
Ertu hjátrúarfull: Já, ég get verið
mjög hjátrúarfull.
Hvað er velgengni fyrir þér: Að
vera ánægður í því sem maður er
að gera.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Tónlist með Aron Can,
ABBA og A-ha kemur mér alltaf í
gott skap.
Hvernig gekk sýningin? Hún gekk
rosalega vel, ég er í skýjunum með
hana.
Hvað stendur upp úr frá goslok-
um? Klárlega sýningin mín og að
hafa gaman með vinkonum
mínum.
Gengur í fjölskyldunni að vera
svona listræn? Nei alls ekki, sé
það strax þegar ég sé pabba
reyna að teikna.
Hvað er næst á dagskrá hjá þér
sem listakonu? Ég ætla bráðlega
að fara að skoða hvað er í
boði í sambandi við listnám,
annars bara halda áfram að teikna
myndir og prufa mig áfram.
tónlistinni.
S U N N A E I N A R S D Ó T T I R
Sunna Einarsdóttir á opnun
sýningarinnar.
L I S T A R Ö L T M E Ð Ó M A R I Á G O S L O K U M