Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Síða 9
20. júlí 2023 | | 9
Alda Gunnarsdóttir
Hvernig fannst þér á goslokum í
ár? Goslokahátíðin var glæsileg í
ár og ekki spillti veðrið sem við
fengum.
Ferðu reglulega á goslok? Já, ég
hef sótt allar goslokahátíðarnar
sem haldnar hafa verið.
Hvaða viðburði mættir þú á? Ég
fór á ýmsa viðburði, margvíslegar
sýningar og á frábæru tónleikana
sem Lúðrasveit Vestmannaeyja
hélt.
Hvað stóð upp úr og af hverju?
Við erum svo heppin hvað við
Vestmannaeyingar eigum mikið
af listafólki á öllum sviðum og
frábært að þau er tilbúin að deila
því með okkur og gleðja. Ég verð
að segja að ljósmyndasýningin
hjá Erni frænda stóð upp úr. Hans
saga, lífsgleði og jákvæðni skín
í myndum hans. Hann kann að
njóta augnabliksins.
Erna Georgsdóttir
Hvernig fannst þér á goslokum í
ár? Mér fannst þau takast virki-
lega vel og gaman að sjá allt þetta
mannlíf sem var í Eyjum.
Ferðu reglulega á goslok? Já, ég
myndi segja það.
Hvert var verkefnið þitt þessi
goslok? Þar sem ég sit í Gos-
lokanefnd ásamt öðru góðu fólki
þá var nóg að gera í ár. Það var
helst að halda utan um alla þá við-
burði sem voru á okkar vegum og
reyna að láta allt ganga sem best.
Hvaða viðburði mættir þú á? Ég
held ég geti sagt að ég hafi mætt á
um 90% þeirra viðburða sem voru
á dagskrá hjá okkur.
Hvað stóð upp úr og af hverju?
Það sem stóð upp úr var hvað
veðrið lék við okkur þessa hátíð
og hvað gleðin var allsráðandi.
Eins heppnaðist Goslokalitahlaup-
ið einstaklega vel og má segja að
það hafi staðið upp úr.
Marcin Kazimierz Zaborski
Hvernig fannst þér á goslokum
í ár? Geggjað, það er alltaf jafn
gaman.
Ferðu reglulega á goslok? Árlega.
Hvaða viðburði mættir þú á?
Finnst alltaf gaman að skoða
listasýningarnar en Skipasandur er
í miklu uppáhaldi.
Hvað stóð upp úr og af hverju?
Fyrir mér er Skipasandur alltaf
toppurinn af goslokunum. Það er
ekkert betra en að rölta um með
vinum í leit að fólki sem maður
þekkir. Þetta er bara eitt stórt ætt-
armót og auðvitað góð upphitun
fyrir Þjóðhátíð. Sundfélag ÍBV
mætti samt mæta aftur með popp-
vélina, ég sakna hennar innilega.
Sædís María Hilmarsdóttir
Hvernig fannst þér á goslokum í
ár? Algjörlega frábært.
Ferðu reglulega á goslok? Já, við
Gulli erum nánast alltaf í Eyjum
um goslokin.
Hvaða viðburði mættir þú á?
Pistlana hjá Gísla Helgasyni í
Eldheimum, tónlistarviðburði,
myndlistasýningar og á Skipasand
á laugardagskvöldinu, fyrir utan
að vera bara ein af hundruðum
manna í Bárugötunni þessa daga.
Hvað stóð upp úr og af hverju?
Samveran með hluta af fjöl-
skyldunni og góðum vinum, veðr-
ið sem lék við eyjafólk og gesti og
hvað allt var fallegt og gott.
Samantekt: Díana og Salka