Fréttir - Eyjafréttir - 20.07.2023, Side 15
20. júlí 2023 | | 15
Um 270 íbúðarhús með um 320
íbúðum fóru undir hraun og ösku
í gosinu 1973. Til viðbótar fóru
um 40 fasteignir –atvinnuhúsnæði
– undir hraun, einkum í framrás
þess í lok mars 1973. Fljótlega
eftir gos voru grafin upp 80
íbúðarhús sem áður höfðu verið
bætt sem altjón við Helgafells-
braut og þar fyrir austan. Liðlega
40 húsanna voru metin ónýt og
brotin niður.
Hin 40 húsin voru í viðgerða-
hæfu ástandi og voru síðar seld af
Viðlagasjóði.
Tæplega 30 húseignir sem voru
nálægt hraunkantinum voru bætt
af Viðlagasjóði og voru flest
þeirra seld eftir gos. Þessu til
viðbótar voru nokkur íbúðarhús
og útihús í miðbænum dæmd ónýt
af völdum eldgossins.
Um 45% þeirra íbúa sem bjuggu
fyrir gos í þeim hluta bæjarins
sem fór undir hraun eða ösku
komu ekki til baka eftir gosið.
Um 55% íbúa á þessu svæði fluttu
á ný til Eyja fljótlega eftir gos.
Reiknað er með að 2 til 3 árum
eftir gos hafi 60 til 65% íbúanna
sem bjuggu í Eyjum fyrir gos ver-
ið komin til baka á heimaslóð.
Þetta er meðal þess sem fram
kom á málstofunni, Eldgosið
á Heimaey 1973 og áhrif þess
á þróun byggðar og mannlífs í
Eyjum. Var brugðið var upp á sýn-
ingartjald myndum og skýringum
sem tengjast eldgosinu á Heimaey
og þeim gríðarlegu áhrifum sem
það hafði á allt umhverfið. Arnar
Sigurmundsson stóð fyrir mál-
stofunni sem var hluti af 50 ára
goslokaafmælinu í samstarfi við
Safnahúsið, Kára Bjarnason og
Viktor Pétur Jónsson sem annaðist
skönnun og umbrot.
Ráðstefnan var á laugardaginn í
Kviku og var vel sótt. Arnar fékk
þá Pál Zóphóníasson þá bæjar-
tæknifræðing, og síðar bæjarstjóra
og Hallgrím Tryggvason vélvirkja
til að fjalla um þau krefjandi
verkefni sem voru í gosinu.
Hallgrímur vann við uppsetningu
öflugs dælubúnaðar sem kom frá
Bandaríkjunum í lok mars 1973
og skipti sköpum í baráttu við
framrás hraunsins.
Arnar þekkti vel til mála og var
einn af þeim sem var við störf í
Eyjum meirihluta gostímans og
tók við starfi fulltrúa Viðlagasjóðs
í Eyjum í september 1973 en þá
flutti sjóðurinn skrifstofur sínar
að Skólavegi 6. Þá voru yfirmenn
Viðlagasjóðs í Eyjum Guðmund-
ur Karlsson framkvæmdastjóri
Fiskiðjunnar, sem þá var kominn
á fullt í uppbyggingu frysti-
hússins og flutning tækja og koma
fyrirtækinu í gang fyrir vetrar-
vertíð 1974. Páll Zóphóníasson
var kominn aftur til starfa sem
bæjartæknifræðingur bæjarins og
gríðarleg verkefni framundan.
Þá tóku við störf matsmanna
vegna skemmda á húsum, eftirlit
með húseignum sjóðsins, upp-
gröftur í austurbænum og síðar
sala á húseignum sjóðsins. Starf-
semi sjóðsins í Eyjum lauk 1977
en þá sá fyrir endann á stórfelldri
uppgræðslu á Haugasvæðinu,
Helgafelli, Eldfelli, Heimakletti
og víðar á bæjarlandinu undir
stjórn Gísla Óskarssonar kennara
og margra samstarfsaðila.
Dapurleg örlög margra húsa
Tekin voru fyrir verkefni og at-
burðir sem hafa hlotið minni um-
fjöllun. Má þar nefna nákvæma
samantekt á fjölda mannvirkja,
íbúðarhúsa og atvinnuhúsnæðis
sem fóru undir hraun og vikur
í gosinu. Þegar allt er talið var
heildarfjöldi eigna um 400 og eru
þá útihús talin með. Íbúðir voru
nálægt 300. Árið 1974 var lokið
að mestu að grafa upp úr gjalli
húsin austan Helgafellsbrautar,
við Kirkjubæjarbraut, Ásaveg,
Búastaðabraut, Nýjabæjarbraut
og Gerðisbraut. Stór og djúpur
skurður var grafinn í Helgafells-
braut til að draga úr hitaleiðni sem
barst í húsin vestan götunnar og
gat valdið miklu tjóni.
Alls voru grafin upp um 80 hús
á þessu svæði og við efri hluta
Heimagötu. Um svipað leyti var
að lokið að fjarlægja hraunið á
efri hluta Heimagötu og við neðri
hluta Kirkjuvegar. Arnar sýndi
myndir af húsum í austurbænum
1974 eftir að þau voru grafin upp
úr gjallinu að loknu gosi. Rúm-
lega helmingur þeirra var grafinn
upp og seld nýjum eigendum,
önnur dæmd ónýt og brotin niður.
Þá voru margar eignir einnig
bættar sem altjón sem lágu mjög
nálægt hraunkantinum við Heima-
götu og neðri hluta Kirkjuvegar,
Miðstræti og víðar.
Guðmundur Sigfússon tók
myndir af þessum húsum 1974
að beiðni Viðlagasjóðs og var
það áður en þau voru metin af
matsmönnum. Sem fyrr sagði
voru mörg þeirra dæmd ónýt og
brotin niður.
Tölulegar upplýsingar og
gríðarleg áhrif gossins
Arnar, Páll og Hallgrímur höfðu frá mörgu að segja.
Búastaðabraut sumarið 1974. Mynd Guðmundur Sigfússon.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is