Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 28

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 28
28 | | 21. desember 2023 Ester Lóa Ágústsdóttir Aldur: 5.ára. Fjölskylda: Betsý, mamma Fríða, pabbi hann Ágúst, Andrea, Thelma og Guðbjörg. Afhverju höldum við uppá jólin? Útaf því að við að við erum að fara að skreyta með jólaskrauti. Uppáhalds jólasveinninn þinn? Stúfur. Hvað er skemmtilegast við jólin? Að fá eitthvað í jólagjöf. Hvað langar þig í jólagjöf? Mig langar í hreindýrabangsa. Hvað ætlar þú að gera um jólin? Kveikja á kerti og drekka kakó. Allir fá þá eitthvað fallegt ... H V A Ð S E G J A B Ö R N I N U M J Ó L I N ? Hilmar Orri Birkisson Aldur: 5. ára. Fjölskylda: Mamma- Margrét Steinunn, pabbi – Birkir og litli bróðir minn hann Jóhann Bjartur. Afhverju höldum við uppá jólin? Afþví að bráðum fer að snjóa svo á líka Jesú afmæli á jólunum. Uppáhalds jólasveinninn þinn? Stekkjastaur, hann er svo stór. Hvað er skemmtilegast við jólin? Að opna pakkana, horfa á jólamyndir, fá heitt súkkulaði og þegar jólasveinn- inn kemur að gefa í skóinn. Hvað langar þig í jólagjöf? Segulkubba, lestarteina, legokubba, bók og spil. Hvað ætlar þú að gera um jólin? Leika mér, fara í heita pottinn og sundlaugina. Ætla að gera allt um jólin, fara í göngu og gistipartý í stofuni með mömmu og pabba. Líam Ragnarsson Aldur: 5 ára. Fjölskylda: Mamma mín heitir Bjartey Kjartansdóttir og pabbi minn heitir Ragnar Þór Jóhannsson og systur mínar París og Chloé. Afhverju höldum við uppá jólin? Útaf jólasveinarnir eru að koma. Uppáhalds jólasveinninn þinn? Pottaskefill er besti jólasveinn- inn minn. Hvað er skemmtilegast við jólin? Að fá risastóra gjöf og að leika við vini mína. Hvað langar þig í jólagjöf? Dróna og spiderman búning með grímu. Hvað ætlar þú að gera um jólin? Leika við vini mína allan daginn. Alexandra Árný Héðinsdóttir Aldur: 5ára. Fjölskylda: Mamma Donna Ýr, pabbi Héðinn,Ísabella Ýr, Ísak Huginn, Natala Lóa, Jóhanna Bjarni. Afhverju höldum við uppá jólin? Út af jólasveinunum og snjónum. Uppáhalds jólasveinninn þinn? Allir jólasveinarnir bestir. Hvað er skemmtilegast við jólin? Elska allt við jólin. Hvað langar þig í jólagjöf? Risa stórt Barbie hús. Hvað ætlar þú að gera um jólin? Fara á þotu og renna mér í snjónum eða leika mér heima.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.