Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Blaðsíða 6
6 | | 21. desember 2023 Gaman saman um jólin Ragnhildur Þorbjörg Svansdóttir Jólaljósin upp í byrjun nóvember Fjölskylda? Gift Vilhjálmi Ísfeld Vilhjálms- syni við eigum 3 börn, þau Sigurð Inga, Sigurbjörgu Jónu Ísfeld og Svan Pál Ísfeld og eigum við 2 tengdadætur og 3 barnabörn. Hvernig leggjast jólin í þig? Bara vel, rólegur tími. Hvaða ilmur minnir þig á jólin?Uhhh það eru ekki komin jól fyrr en ég er búin að fá skötuna, svo skötulykt minnir mig að jólin. Fer mikill undirbúningur í jólin? Hjá okkur fer ekki mikill tími í jólin. Við reynum að hafa allt voðalega rólegt og nei eða jú ég geri alltaf sósuna með jólamatnum. Hvað stendur upp úr á jólunum? Samveran. Eruð þið með jólahefð? Nei ekkert svoleiðis nema reynum að setja upp jólaljósin í byrjun nóvember. Hjálmar Þorleifsson Horfi á allar Lord of the rings myndirnar Fjölskylda? Ég á yndislega konu sem heitir Bára Viðarsdóttir og gengur hún um með erfingjann í maganum. Norskan kettling og Greyhound hvolp. Foreldrar mínir eru Ágústa Hulda og Þorleifur Dolli. (Sigurjón Ingvars og Sigurdís Harpa fá bónusstig). Hvernig leggjast jólin í þig? Þau leggjast helvíti vel í mig. Ég er ekki þekktur fyrir að vera mikið jólabarn en það er gott að sleppa við Herjólfinn þessi jólin fyrst maður er fluttur á eyjuna aftur. Hvaða ilmur minnir þig á jólin? Mandarínu -og piparkökulykt er mikill jólailmur fyrir mér. Fer mikill undirbúningur í jólin? Þessi jólin er lítill undirbúningur því að ekkert jólaskraut er til á heimilinu. Ég hef alltaf verið hjá mömmu um jólin og hún sér um nákvæmlega allt. Nema kannski að kaupa jólagjafir, Báran mín sér alfarið um það. Hvað stendur upp úr á jólunum? Að hitta alla fjölskylduna og spila nokkur spil. Eruð þið með jólahefð? Ég hef alltaf horft á allar Lord of the rings í kringum jólin. Svo er alltaf gúrkumót eftir jólamatinn. Lovísa Jóhannsdóttir Rækjukokteill í forrétt jólahefð Fjölskylda? Ég er gift Jökli Andra Sigurðssyni og við eigum soninn Daníel Andra. Hvernig leggjast jólin í þig? Þau leggjast mjög vel í mig og ég hef alltaf verið mikið jólabarn. Hvaða ilmur minnir þig á jólin? Þegar ömmukökurnar eru í ofninum sem mamma bakar á hverju ári. Síðan eru ilm- kerti með jólailmi rosa góð líka. Fer mikill undirbúningur í jólin? Svona bæði og. Ég byrja snemma að kaupa gjafir og svo skiptum við stórfjölskyldan dögunum á milli okkar. Síðustu ár höfum við ákveðið að vera ekkert að stressa okkur og njóta frekar. Svo jólin koma alveg þó skyrtan sé ekki straujuð eða grænu baun- irnar gleymdust í innkaupaferðinni. En þá bjargar Kvenfólk í eyjum hópurinn manni oftast. Hvað stendur upp úr á jólunum? Mér finnst samverustundirnar skemmtileg- astar. Taka röltið á Þorláksmessu og kíkja í búðir og hlusta á ljúfa tóna hjá Lúðrasveit Vestmannaeyja. Eruð þið með jólahefð? Já það er alltaf rækjukokteill í forrétt á aðfangadag og við gæðum okkur á honum þegar bjöllurnar hringja inn jólin. Það er svona eina hefðin sem ég man eftir frá því ég var barn og það sem heldur sér ennþá. Sama uppskriftin kom frá langömmu sem fór síðan til ömmu og þaðan til mömmu og ætli ég sé ekki næst. Annars höfum við síðustu jól bara verið í náttfötunum á að- fangadag svo kannski verður það jólahefð, sem mér finnst æðisleg því hvað er betra en að vera í þægilegum fatnaði og borða góðan mat. Grinch (Trölli) Lyktin af brenndum piparkökum minnir mig á jólin Hvar átt þú heima? Ég bý norður austur suður megin í Klifinu. Hvernig leggjast jólin í þig? Ég hata jólin, fer ekki að koma sumar? Hvað borða tröll á jólunum? Við borðum súran rusla mat og glerbrot alla daga. Hvaða lykt minnir þig á jólin? Lyktin sem minnir mig á jólin eru brenndar piparkökur. Ertu með jólahefð? Jólahefðin mín í ár eins og öll síðustu ár sú að ég baða Max hundinn minn og ég klippi nef og eyrna hárinn á mér. Ætlar þú að stela jólunum í ár? Ég ætla auð- vitað að reyna að stela jólunum í ár nema einhver fjölskylda vilji kíkja í Klifið til mín eða bjóða mér heim til sín. Kristófer Gauti Garðarsson var ánægður að frá Grinch í heimsókn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.