Fréttir - Eyjafréttir - 21.12.2023, Side 6
6 | | 21. desember 2023
Gaman saman um jólin
Ragnhildur Þorbjörg Svansdóttir
Jólaljósin upp
í byrjun nóvember
Fjölskylda? Gift Vilhjálmi Ísfeld Vilhjálms-
syni við eigum 3 börn, þau Sigurð Inga,
Sigurbjörgu Jónu Ísfeld og Svan Pál Ísfeld
og eigum við 2 tengdadætur og 3 barnabörn.
Hvernig leggjast jólin í þig? Bara vel,
rólegur tími.
Hvaða ilmur minnir þig á jólin?Uhhh það
eru ekki komin jól fyrr en ég er búin að fá
skötuna, svo skötulykt minnir mig að jólin.
Fer mikill undirbúningur í jólin? Hjá okkur
fer ekki mikill tími í jólin. Við reynum að
hafa allt voðalega rólegt og nei eða jú ég
geri alltaf sósuna með jólamatnum.
Hvað stendur upp úr á jólunum? Samveran.
Eruð þið með jólahefð? Nei ekkert svoleiðis
nema reynum að setja upp jólaljósin í byrjun
nóvember.
Hjálmar Þorleifsson
Horfi á allar Lord of
the rings myndirnar
Fjölskylda? Ég á yndislega konu sem heitir
Bára Viðarsdóttir og gengur hún um með
erfingjann í maganum. Norskan kettling
og Greyhound hvolp. Foreldrar mínir eru
Ágústa Hulda og Þorleifur Dolli. (Sigurjón
Ingvars og Sigurdís Harpa fá bónusstig).
Hvernig leggjast jólin í þig? Þau leggjast
helvíti vel í mig. Ég er ekki þekktur fyrir að
vera mikið jólabarn en það er gott að sleppa
við Herjólfinn þessi jólin fyrst maður er
fluttur á eyjuna aftur.
Hvaða ilmur minnir þig á jólin? Mandarínu
-og piparkökulykt er mikill jólailmur fyrir
mér.
Fer mikill undirbúningur í jólin? Þessi
jólin er lítill undirbúningur því að ekkert
jólaskraut er til á heimilinu. Ég hef alltaf
verið hjá mömmu um jólin og hún sér um
nákvæmlega allt. Nema kannski að kaupa
jólagjafir, Báran mín sér alfarið um það.
Hvað stendur upp úr á jólunum? Að hitta
alla fjölskylduna og spila nokkur spil.
Eruð þið með jólahefð? Ég hef alltaf horft á
allar Lord of the rings í kringum jólin. Svo
er alltaf gúrkumót eftir jólamatinn.
Lovísa Jóhannsdóttir
Rækjukokteill í
forrétt jólahefð
Fjölskylda?
Ég er gift Jökli Andra Sigurðssyni og við
eigum soninn Daníel Andra.
Hvernig leggjast jólin í þig?
Þau leggjast mjög vel í mig og ég hef alltaf
verið mikið jólabarn.
Hvaða ilmur minnir þig á jólin?
Þegar ömmukökurnar eru í ofninum sem
mamma bakar á hverju ári. Síðan eru ilm-
kerti með jólailmi rosa góð líka.
Fer mikill undirbúningur í jólin?
Svona bæði og. Ég byrja snemma að kaupa
gjafir og svo skiptum við stórfjölskyldan
dögunum á milli okkar. Síðustu ár höfum
við ákveðið að vera ekkert að stressa okkur
og njóta frekar. Svo jólin koma alveg þó
skyrtan sé ekki straujuð eða grænu baun-
irnar gleymdust í innkaupaferðinni. En þá
bjargar Kvenfólk í eyjum hópurinn manni
oftast.
Hvað stendur upp úr á jólunum?
Mér finnst samverustundirnar skemmtileg-
astar. Taka röltið á Þorláksmessu og kíkja í
búðir og hlusta á ljúfa tóna hjá Lúðrasveit
Vestmannaeyja.
Eruð þið með jólahefð?
Já það er alltaf rækjukokteill í forrétt á
aðfangadag og við gæðum okkur á honum
þegar bjöllurnar hringja inn jólin. Það er
svona eina hefðin sem ég man eftir frá því
ég var barn og það sem heldur sér ennþá.
Sama uppskriftin kom frá langömmu sem
fór síðan til ömmu og þaðan til mömmu
og ætli ég sé ekki næst. Annars höfum við
síðustu jól bara verið í náttfötunum á að-
fangadag svo kannski verður það jólahefð,
sem mér finnst æðisleg því hvað er betra en
að vera í þægilegum fatnaði og borða
góðan mat.
Grinch (Trölli)
Lyktin af brenndum
piparkökum minnir
mig á jólin
Hvar átt þú heima? Ég bý norður austur
suður megin í Klifinu.
Hvernig leggjast jólin í þig? Ég hata jólin,
fer ekki að koma sumar?
Hvað borða tröll á jólunum? Við borðum
súran rusla mat og glerbrot alla daga.
Hvaða lykt minnir þig á jólin? Lyktin sem
minnir mig á jólin eru brenndar piparkökur.
Ertu með jólahefð? Jólahefðin mín í ár eins
og öll síðustu ár sú að ég baða Max hundinn
minn og ég klippi nef og eyrna hárinn á mér.
Ætlar þú að stela jólunum í ár? Ég ætla auð-
vitað að reyna að stela jólunum í ár nema
einhver fjölskylda vilji kíkja í Klifið til mín
eða bjóða mér heim til sín.
Kristófer Gauti Garðarsson var ánægður að frá
Grinch í heimsókn.