Stuðlaberg - 01.11.2021, Qupperneq 6

Stuðlaberg - 01.11.2021, Qupperneq 6
6 STUÐLABERG 2/2021 Kossi heitum kyssi ég þig Bók með hestavísum Árið 1992 kom út bókin Fjörið blikar augum í, hátt í þúsund hestavísur sem Albert Jóhanns- son í Skógum safnaði. Þetta er afar vönduð útgáfa. Aftast í bókinni er höfundaskrá með tilvísunum í blaðsíður, þá er sams konar skrá yfir hestanöfn sem fyrir koma og að lokum er skrá yfir fyrstu braglínu (vísuorð) hverrar vísu. Höfundar eru um tvö hundruð og fimm- tíu og hestanöfnin eru rösklega hundrað og fimmtíu. Bent skal á að margir hestar bera sömu nöfn. Þrettán sinnum má lesa nafnið Bleikur, átta sinnum Blesi, sex sinnum Gletta, fimmtán sinnum Gráni, nafnið Rauður kemur einnig fimmtán sinnum fyrir, Skjóni sex sinnum, Sokki átta sinnum og Sörli níu sinnum. Önnur nöfn eru sjaldséðari. Í bókinni er margt vel sagt. Guðfinna Þor- steinsdóttir (Erla skáldkona) í Teigi í Vopna- firði yrkir: Gola hnellin geymir þol, Golu besta hross ég tel. Gola hefur grannan bol, Golu þarf að fóðra vel. Í annarri vísu kveður hún vin: Þótt ég beri þurra kinn þiðna fann ég brána, þegar heiman hinsta sinn horfði ég eftir Grána. Páll Ólafsson, skáld á Hallfreðarstöðum, orti fræga vísu: Eg hef selt hann Yngra Rauð, er því sjaldan glaður. Svona er að vanta veraldarauð og vera drykkjumaður. Margrét Rögnvaldsdóttir orti: Þú hefur borið, Þröstur, mig þúsund glaðar stundir. Kossi heitum kyssi ég þig kofaveggnum undir. Þórður á Strjúgi orti þessa alkunnu vísu á sextándu öld: Þótt slípist klár og slitni gjörð slettunum ekki kvíddu. Hugsaðu hvorki um himin né jörð haltu þér fast og ríddu. Sigurlaug Árnadóttir í Breiðagerði segir: Sörli flestum frárri er, fær sá bestan hróður og af mestu mönnum hér metinn hestur góður. Allir vita að hestar þjást oft af heimþrá. Ólína Jónasdóttir kvað: Heim í æsku hlýjan stað, hugann aftur langar. Veslings Jarpur, veistu að við erum bæði fangar. Við endum á þekktri vísu eftir Hermann Jónasson, fyrrum forsætisráðherra: Betra er að vera klakaklár og krafsa snjó til heiða en lifa mýldur öll sín ár undir hnakk og reiða. RIA. Sh u bh ik a B ha ra th w aj

x

Stuðlaberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.