Stuðlaberg - 01.11.2021, Qupperneq 7

Stuðlaberg - 01.11.2021, Qupperneq 7
STUÐLABERG 2/2021 7 Þegar farið er inn á bragur.is opnast kennslugátt sem Skólavefurinn lét setja upp fyrir nokkrum árum en þar er veitt tilsögn í bragfræði. Með því að fara þar inn er hægt að verða sér úti um upplýsingar um allar helstu grunnreglur bragfræðinnar. Þegar komið er inn á síðuna blasa við kaflaheiti: » Um bragreglur » Hrynjandi » Rím » Ljóðstafir » Erindi » Bragarhættir » Bókin til útprentunar » Verkefni » Verkefnahefti til útprentunar » Svarhefti til útprentunar » Fyrirspurnahornið » Rímnasafn Hér er fjallað um regluverk bragarins, skýrt frá hrynjandinni í ljóðinu, taktskiptingunni og áherslunum, rímið skýrt út, fjallað um stuðla og höfuðstafi og hver staða þeirra er í vísunni, þá er rætt um erindaskiptingu, ferkvæðar, þríkvæðar og tvíkvæðar vísur og svo eru sýnd dæmi um tuttugu algengustu rímnahættina – með skýringum. Ef slegið er á fyrirsögnina Bókin til út- prentunar birtist pdf-skjal af öllum köflunum. Það er hægt að prenta út. Þá kemur að kafla sem inniheldur verkefni fyrir byrjendur til að æfa sig í vísnagerð. Til að æfa nemendur eru notaðar orðavísur þar sem orðum hefur verið ruglað og á að raða þeim rétt saman eftir bragreglunum. Þar er annars vegar verkefnablað þar sem hægt er að skrá vísuna en hins vegar er hægt að fara inn á gagnvirka æfingu þar sem vísan er sett upp en vantar nokkur orð inn. Þau orð eru skráð fyrir ofan vísuna og nemandinn velur hvaða orð hann slær inn. Þar er þó að ýmsu að hyggja því að ekki er sama hvaða orð koma hvar. Til að vísan sé ásættanleg bragfræði- lega þarf að velja rétt orð í reitina. Tölvan vakir yfir því að farið sé eftir bragreglunum og ef það er gert launar hún með tilheyrandi einkunnagjöf og segir: Rétt! Vel gert! Í Svarhefti til útprentunar er hægt að finna svör við þessum vísnaverkefnum. Þar er sýnt hvernig hægt er að setja vísurnar upp þannig að þær séu réttar en oftast eru fjölmargir möguleikar sem koma til greina og engin leið að sýna þá alla. Svarheftið gefur möguleika á að prenta út lítið kver með öllum verkefn- unum ásamt lausnum. Í Fyrirspurnahorninu er gefið upp netfang þar sem hægt er að senda inn spurningar sem vakna viðvíkjandi bragfræðinni. Þar situr fyrir svörum sá sem hér skrifar. Rímnasafnið er heldur lítið að vöxtum – enn þá. Stefnt er að því að auka það efni á næstunni. Það er von okkar sem stöndum að þessum vef að hann geti orðið til leiðsagnar þeim sem vilja vita meira um stuðlanna þrískiptu grein. Áhugafólk um bragfræði og vísnagerð er hvatt til að fara þarna inn og kynna sér málið af eigin raun. RIA. Rétt! Vel gert! Bragfræði á Skólavefnum

x

Stuðlaberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.