Stuðlaberg - 01.11.2021, Síða 10

Stuðlaberg - 01.11.2021, Síða 10
10 STUÐLABERG 2/2021 Þau kjörseðla settu í kassa Dægurvísur Dægurvísnaþátturinn að þessu sinni er helgaður nýafstöðnum kosningum og var því einkum beint til hagyrðinga að yrkja um taln- inguna og úrslitin, sem að ýmsu leyti komu á óvart. Vísnasmiðir brugðust vel við. Við byrjum á Hannesi Sigurðssyni, afgreiðslu- manni á Akureyri. Hann gerði limru sem kallast Tillaga að nýju slagorði Framsóknar: Framsókn er undirbúin best að bæta, rétta og laga flest, vonda siðu, vinstri riðu og válega hægri bráðapest. Anton Helgi Jónsson, skáld og rithöfundur, veltir fyrir sér talningunni og uppákomum í því sambandi: Tvisvar minnst ég talið hef, tölu held á fundi: Sæti hreppa hiklaust Ef, Hefði sem og Mundi. Sigrún Á. Haraldsdóttir skrifstofumaður spyr: Hvað klikkaði hjá Sigmundi Davíð? Hann var rökvís og reifur á flakkinu og rudd’ úr sér kosningasnakkinu hann fussaði á krata og faðmaði Snata en feilaði á ólukkans hakkinu. Séra Hjálmar Jónsson, fyrrverandi dóm- kirkjuprestur og þingmaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn, yrkir: Fletti blöðum, full með raus, forðaðist röðun veika, þjóð með glöðu geði kaus grósku og stöðugleika. Og Sigríður Hjálmarsdóttir er á sömu nótum og faðir hennar: Vinstri öflin vægðarlaust á vetur harðan kalla. Kjósum frekar hægra haust með hagvöxt fyrir alla. Sigurlín Hermannsdóttir, starfsmaður Al- þingis, gerði limru: Um helgina á kosningahátíð var hamingja sumra mjög fátíð er inn fóru’ á þing en eftir einn hring, var þingsetan strax orðin þátíð. Páll Jónasson æðarbóndi yrkir Bjartsýnis- ljóð eftir dauðann: Við hljótum bæði góða og gamalreynda stjórn sem getur mörgu lofað og hefur ermar víðar, við þurfum kannski gamlingjar að færa litla fórn en fáum bara kjarabót á himnum skömmu síðar.    Svanur Bjarki Úlfarsson tónlistarmaður yrkir sléttubönd: Aftur telja mæddir menn, muna hefðir sveita. Kraftur laga sofnar senn, sumra stöðu breyta. Illa gekk að telja í Borgarnesi í alþingiskosningunum í haust.

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.