Stuðlaberg - 01.11.2021, Blaðsíða 21

Stuðlaberg - 01.11.2021, Blaðsíða 21
STUÐLABERG 2/2021 21 að virkja börn og ungmenni með okkur og ljóðahátíðin okkar hefur þá sérstöðu að þar taka börn alltaf virkan þátt. Þetta hefur skilað sér í því að ljóðið er eitthvað sem börn hér í sveitarfélaginu alast upp við, það er hluti af tilverunni. Við höfum átt mjög gott sam- starf við skólana hér á svæðinu, sérstaklega Grunnskóla Fjallabyggðar, og það hefur verið áberandi undanfarin ár hversu margar viður- kenningar í ljóðasamkeppnum nemenda á landsvísu hafa komið til nemenda þess skóla. Annars finnst mér að mikil gróska hafi verið í ljóðagerð hjá ungu fólki síðustu ár. Ég fæ töluvert af ungu og áhugasömu fólki á setrið sem er að gera tilraunir með að setja saman ljóð, eða hefur jafnvel gefið út ljóðabók. Það er mjög gaman að leiða slíka gesti í gegnum setrið og ræða um ljóðlistina. Tekur þú við ljóðabókum sem fólk vill losa sig við en kann ekki við að henda? Já, það er enn eitthvað rými til þess og við tökum glöð við slíkum gjöfum. Maður hefur orðið var við að ljóðabækurnar standa hjörtum fólks gjarnan nær en aðrar bækur og fólki líður vel með að koma þeim á stað þar sem þær koma að góðum notum. Óneitanlega er þó farið að safnast nokkuð mikið upp af aukaeintökum, en þau nýtast sem söluvara, í uppstillingar og ýmis verkefni. Standa til einhverjar breytingar á Ljóðasetrinu? Já, það er eitt og annað í farvatninu eftir lag- færingar á húsnæðinu. Eins og fyrr segir tókum við í gagnið nýtt og glæsilegt bókarými í tilefni af tíu ára afmælinu. Gólfflötur seturs ins er ekki stór svo ekki var hægt að stækka bókarýmið á þann veginn og því fórum við upp, opnuðum milli hæða og nú standa bókahillurnar um fimm metra upp í loftið. Efri hæðin er að öðru leyti að mestu ónotuð og enn á eftir að gera hana upp. En þar ætlum við að koma á fót sér- stakri Siglufjarðarstofu þar sem bókmenntum Siglfirðinga, og tengdum Siglufirði, verða gerð skil auk þess sem þar verður sýningarrými fyrir minni sýningar. Með nýja þakinu varð svo til spennandi rými á háaloftinu þar sem upplagt er að vera með upplestra og sögustundir. Hverjir eru helstu dýrgripirnir í safninu? Það er nú erfitt að segja en við eigum mikið af árituðum og tölusettum ljóðabókum og fyrstu útgáfur af ýmsum merkum ljóða- bókum. Þar má t.d. nefna áritað og tölusett eintak af fyrstu bók Stefáns frá Hvítadal, Söngvum förumannsins, 10. eintakið af 290, og fallega áritað eintak af Við sundin blá eftir Tómas Guðmundsson. Svo eru hér ýmsar gamlar útgáfur af Passíusálmunum og bókum þjóðskáldanna svo eitthvað sé nefnt. Hvað er minnisstæðast úr sögu Ljóðasetursins? Vígsludagurinn sjálfur, 8. júlí 2011, stendur upp úr í minningunni, að sjá drauminn verða að veruleika eftir mótlætið og alla vinnuna. Að frú Vigdís Finnbogadóttir væri þar með okkur og lýsti setrið opið er nokkuð sem ég mun aldrei gleyma, það var alveg ómetanlegt. Svipmynd frá fyrsta starfsári Ljóðasetursins á Siglufirði. J.R .

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.