Stuðlaberg - 01.11.2021, Síða 23

Stuðlaberg - 01.11.2021, Síða 23
STUÐLABERG 2/2021 23 Leirlistinn þrítugur Rætt við Þóri Jónsson í Ólafsfirði Leirlistinn, sem svo var kallaður, varð til undir lok síðustu aldar. Þar hrönnuðust inn vísur, stundum nokkrir tugir yfir daginn, misgóðar að sjálfsögðu en margar þeirra urðu fleygar. Þetta var á þeim tíma þegar vísnahefðin var að taka við sér eftir nokkurra áratuga svefn og hagyrðingar notuðu hvert tækifæri til að koma afurð sinni á markað. Til að forvitnast um uppruna og tilurð Leir- listans var leitað í smiðju Þóris Jónssonar, kennara í Ólafsfirði, og hann inntur eftir því hvernig þetta hefði borið að. Hér kemur frásögn hans ásamt sýnishorni af vísum frá fyrsta árinu. Þegar ég glugga í gömul skjöl til að kanna uppruna póstlistans leir@ismennt.is – manna milli oft nefndur Leirlistinn, Leirpotturinn eða bara Leir – sýnist mér helst að fyrsta kímið fari að spíra á haustdögum 1991. Um það leyti bárust fyrstu vísurnar inn á listann. Pétur Þorsteinsson á Kópaskeri hafði þá sett upp heima hjá sér Unix-vél sem gegndi nafn- inu Imba. Lénsherradæmi hans á Netinu var kopasker.is. Á þessum tíma voru Unix-vélar tæpast annars staðar en í háskólum og stofn- unum þeim tengdum. Þess vegna spurðu útlenskir iðulega að því hvort Kópasker væri næststærsta borg Íslands. Það þótti okkur skemmtilegt og kölluðum plássið „The City of Copasker“. Auk Péturs voru þá strax tengdir Imbu Jón Jónasson, skólastjóri á Litlu-Laugum í Reykjadal og ég. Fljótlega bættust þeir í hópinn, Benedikt Sigurðarson, skólastjóri Barnaskóla Akureyrar – Barnaskóla Íslands, nú sérfræðingur við RHA, Björn Ingólfs- son, skólastjóri á Grenivík, Halldór Valdi- marsson, skólastjóri á Húsavík, Jón Eyfjörð, félagsmálafulltrúi KÍ, nú forstöðumaður Ís- lenska menntanetsins, Konráð Erlendsson, kennari við Framhaldsskólann á Laugum, Óttar Einarsson, kennari við Grunnskólann á Eiðum, nú kennari við Barnaskólann á Eyrar- bakka og Valdimar Gunnarsson, þá kennari við Menntaskólann á Akureyri. Þessi hópur – stundum nefndur „Vísna- hópur Imbu“ – var fyrsti vísirinn að Leir- listanum í þeirri mynd sem hann átti eftir að taka á sig. Þá var þó ekki um póstlista að ræða heldur venjulegan tölvupóst. Þess vegna er ekki víst, og reyndar heldur ólíklegt, að allir hafi fengið sömu sendingarnar. Fyrsta kveðskapinn eftir þáverandi „Imb- unga“ kallaði Pétur „Vísur Imbu“. Yrkisefni voru tíðast fréttir af mönnum og málefnum og umfjöllunin gjarna kerskin en um leið glettin og laus við illkvittni. Hreinar „neðanmittis- vísur“ voru sjaldséðar. Það var 23. október sem Pétur Þorsteins- son sendir inn limru, tilefnið var augljóslega EES-samningurinn 1991: Frá Lúxemborg leiddust þeir heim, það ljómaði gleðin af þeim. — Búnir að semja og búnir að temja sér ósvikinn Evrópuhreim.

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.