Stuðlaberg - 01.11.2021, Side 26
26 STUÐLABERG 2/2021
Grétar Hallur Þórisson setti saman þessa
stórskemmtilegu paródíu:
Eitt gos ‒ hefur dimmu í dagsljós breytt,
í dal sem er kenndur við steingelda sauði.
Flýtur þar glóandi hraunið heitt,
hristist og skelfur gígurinn rauði.
Svo vel leyndist kvika við Fagradalsfjall
að fræðimenn töldu ei þörf á að vaka.
Nú þekur flatt Reykjanes gasmengað gjall.
Gos verður aldrei tekið til baka.
Gunnar J. Straumland kallar sitt framlag
Dróttkveðna jarðelda:
Drynur Heljar druna,
drýpur glóð á nípu,
brenndur kviku brandur,
bleikur liðast reykur.
Geigvænlegur gígur
gleiður myndar hreiður
grjóteggja í grýtu
grárra nornahára.
Í síðasta hefti voru skoðaðir rímnahættir
sem kallast langhenda, nýhenda, breiðhenda,
stafhenda og samhenda. Að þessu sinni er
fjallað um bragarhætti sem kallast stikluvik,
valstýft, braghenda og valhenda. Stuðst er við
dæmi eftir Sveinbjörn Beinteinsson, Þórarin
Eldjárn og Skúla Pálsson.
Þrettándi hátturinn heitir stikluvik. Vísa
undir þeim hætti kallast það sama.
Lýsing: Fjórar línur, 1., 3. og 4. lína eru fjórar
kveður með síðustu kveðu stýfða; 2. lína er
þrjár kveður óstýfðar. 1., 2. og 4. lína ríma
saman. 2. lína rímar ekki við hinar (rímform
aOaa).
Dæmi:
Næturinnar hljóða húm
hlýjum draumum vefur
elskendanna yndisrúm,
iðandi af morgunfrúm. (S.P.)
— ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌
— ⌣ — ⌣ — ⌣ ◌ ◌
— ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌
— ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌
Fjórtándi hátturinn heitir valstýft. Vísa
undir þeim hætti kallast valstýfa.
Lýsing: Fjórar línur, frumlínurnar eru
fjórar kveður, sú síðasta stýfð, en síðlínur
tvær kveður, sú seinni stýfð. Í þessum
bragarhætti er venjan sú að forliður sé í
síðlínum ef frumlínur enda á stýfðum lið.
Valstýfan er hins vegar stundum þannig
að frumlínurnar eru fjórar kveður óstýfðar
og þá er ekki forliður í síðlínunum (sbr. um
úrkast í Stuðlabergi 2/2020, bls. 26). Allar
línurnar í valstýfu ríma saman en það er
óvenjulegt í rímnaháttum þegar línurnar
eru ekki allar jafnlangar (rímformið er ann-
aðhvort aaaa eða, ef frumlínur eru óstýfðar,
AaAa; vegna þess að rímið verður að hafa
sama áherslusérhljóðann).
Dæmi (rímformið hér er aaaa):
Fuglinn sat og söng á grein
er sólin skein:
– Framundan er brautin bein
og bara ein. (Þ.E.)
— ⌣ — ⌣ — ⌣ —
⌣ — ⌣ — ⌣ ◌ ◌ ◌ ◌
— ⌣ — ⌣ — ⌣ —
⌣ — ⌣ — ⌣ ◌ ◌ ◌ ◌
Af rímnaháttum IV
Stikluvik, valstýfa, braghenda og valhenda