Stuðlaberg - 01.11.2021, Síða 27

Stuðlaberg - 01.11.2021, Síða 27
STUÐLABERG 2/2021 27 Ólína Kerúlf Þorvarðardóttir horfði á nýju gígana í streymi RÚV og orti: Ógnarfuni björgin bræðir. Byltast heitar lendur svarðar. Nótt á báli. Eldur æðir upp úr dimmu skauti jarðar. Lýsir sjóðheit loga tungan. Leiftur þjóta, neistar glæðast. Steinda brjóstið stynur þungan. Storðin – landið – er að fæðast. Við endum á snilldarverki eftir Bjarna Sig- tryggsson. Þetta er kallað alrímað og fátítt að sjá svona vel að verki staðið: Börðin opnast, funinn flæðir, flýtur eimsins glóð. Jörðin vopnast, bruninn blæðir, brýtur heimsins slóð. Þetta hagorða fólk fær mínar bestu þakkir fyrir myndrænar og vel gerðar vísur. RIA. Á myndinni er tákn fyrir forliði framan við síðlínurnar. Línurnar á undan enda ekki á tákninu ◌ fyrir þögn, forliðurinn kemur í hennar stað. Í hinni gerðinni eru frumlínur óstýfðar. Dæmi (rímformið hér er AaAa): Hart skal ríða hjörinn blái haus þinn á. Hinir bíði samt og sjái sennu þá. (S.B.) — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ ◌ ◌ ◌ ◌ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ ◌ ◌ ◌ ◌ Fimmtándi hátturinn heitir braghent. Vísa undir þeim hætti kallast braghenda. Lýsing: Þrjár línur, 1. lína er sex kveður óstýfðar. Í rauninni eru þetta tvær línur, enda ljóðstafir þrír, tveir stuðlar í fyrstu fjórum kveðunum og annar þeirra í 3. kveðu og svo höfuðstafur í 5. kveðu. 2. og 3. lína eru frumlína og síðlína og stuðlast þannig, fjórar kveður óstýfðar. Þær tvær ríma saman en fyrsta línan þarf ekki að ríma við hinar (algengt rímform er OAA eða AAA; oft er fyrsta línan tengd við hinar með sniðrími. Það kallast baksneidd brag- henda). Dæmi (rímið hér er AAA): Dvelur hún á dularfullum draumaslóðum, vekur bros á vörum rjóðum vornóttin með kynjahljóðum. (S.P.) — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣   — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣   — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ Sextándi bragarhátturinn heitir valhent. Vísa undir þeim hætti kallast valhenda. Lýsing: Þrjár línur, 1. lína er sex kveður og sú síðasta stýfð. 2. og 3. lína eru frumlína og síðlína og stuðlast þannig, þær eru fjórar kveður og sú síðasta stýfð. Þær tvær ríma saman en fyrsta línan þarf ekki að ríma við hinar (algengt rímform er oaa, má vera aaa eða baksneiðing, sbr. braghenduna hér að framan). Valhenda er eins og braghenda nema þar enda allar línur á stýfðum lið. Dæmi (þessi valhenda er baksneidd, sjá um braghendu): Hlaupagikkur hleypur urð og hleypur veg, hlaupagikkur hljóp á sig, hlaupagikkur missti stig. (Þ.E.) — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌   — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌   — ⌣ — ⌣ — ⌣ — ◌ Framhald verður í næsta blaði. RIA.

x

Stuðlaberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.