Stuðlaberg - 01.11.2021, Side 29
STUÐLABERG 2/2021 29
og setti lausnirnar fram í vísnaformi. Í þriðja
heftinu er þessi gáta Sveins:
Þessi er í æðum þér.
Annatími bóndans mestur.
Hljóma fagra um húsið ber.
Háski þinni buddu verstur.
Svarið er sláttur og lausn Hjartar er þannig:
Allir þekkja æðaslátt,
einnig túna og hljómaslátt.
Ef að varð af aurum fátt
auðvitað menn reyndu slátt.
Við endum á nokkrum lausavísum Hjartar:
Megi heilög hamingjan
holl mér vera í ferðum
því það er ýmist of eða van
í öllum mínum gerðum.
Verður sálin slöpp og sljó
slíkt ég nærri hata
þetta mjóa mundangshóf
að mega til að rata.
Vísur fæðast vegum á,
vísna glæðist þráin,
vísur læðast líka oss frá
í ljóða- og kvæðasjáinn.
Margoft sjá vér megum það
marga þjáir vetur,
víst þó ávallt vitum að
von ei dáið getur.
Ársrit Önfirðingafélagsins í Reykjavík
2005–2006 er helgað minningu Hjartar í tilefni
þess að hundrað ár voru þá liðin frá fæðingu
hans. Þar má lesa mörg af ljóðum hans og
lausavísum en ljóð Hjartar hafa ekki komið út
á bók.
Hjörtur var skáld hins rúmhelga dags, orti
mest um líðandi stund. Hann gat vel fangað
hin dýpri rök tilverunnar ef svo bar undir
en hann var líka afar fundvís á skemmtilegu
hliðarnar og mest af því sem hann setti saman
var ort í þeim tilgangi að gleðja samborgarana.
Slík ljóð eru mikilvægur hluti af menningararf-
inum, ekki síður en ýmislegt annað. RIA.
Órói
Dagurinn fellur
sem dropinn í hafið,
eilífðar augnablik
gleymt og grafið,
þeir koma og fara
kyrrir og hljóðir,
sumir leiðir
og sumir góðir.
Eitthvað ég þrái
og einhvers ég sakna,
draumar fæðast
en deyja er ég vakna.
Ég veit að sagt er
að sigur hálfur
sé að vita
sinn vilja sjálfur.
En ei ég veit
hvers ég óska vildi,
ef rætast óskin mín
einhver skyldi.
Í draumum ég vaki
í vöku mig dreymir,
en draumana alla
eilífðin geymir.
Ég safna við götuna
gleðinnar brotum,
þó ef til vill verði þau
aldrei að notum.
Og brotum er þannig
eitt sinn varið,
þau skera stundum
ef skakkt er að farið.
Ég leik mér þó að þeim
og stytti mér stundir,
þau veita mér tæpast
ólífis undir.
Er nóttin mig felur
í faðmi sínum
þá byggi ég hallir
úr brotunum mínum.
Hj. Hj.
Hjörtur Hjálmarsson