Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Side 9
Framkvæmdafréttir nr. 726
4. tbl. 31. árg.
9
Fékk nasaþef af gamla tímanum
Hrefna er fædd og uppalin á Svínafelli í Öræfum. Hún
hefur búið bróðurpart ævinnar á Höfn í Hornafirði þar
sem hún býr í dag. Hún hefur gegnt ýmsum störfum í
gegnum árin, var til að mynda að vinna við afgreiðslu í
Jökulsárlóni og síðar Skaftafelli. „Ég byrjaði eiginlega
að elda mat 17 ára gömul árið 1973 þegar verið var
að byggja þjónustumiðstöðina í Skaftafelli,“ rifjar
Hrefna upp og eins og gengur þurfti hún að þróa sig í
því verkefni. „Ég hitti einn samstarfsfélaga frá þessum
tímum mörgum árum seinna og hann sagði að það
hefðu nú verið óþarflega oft bjúgu í matinn,“ segir hún
og hlær.
Hrefna byrjaði í starfi sínu hjá Vegagerðinni
árið 2006 en það var þó ekki í fyrsta sinn sem hún
vann fyrir stofnunina. „Á áttunda áratugnum var
vegavinnuflokkur að vinna að vegagerð í Öræfunum.
Flokkurinn var skipaður körlum úr sveitinni og
vegaverkstjórinn, sem var frá Svínafelli, hafði samband
við mig og bað mig að elda ofan í þá,“ segir Hrefna en
aðstæður vinnuflokkanna þá voru dálítið frábrugðnir
því sem er í dag. „Það er mjög gaman að hafa kynnst
þessum tíma. Þá var maður ekki með margar græjur,
bara Solo eldavél. Stundum fraus vatnið og maður lenti
í allskonar veseni. Þetta var samt bráðskemmtilegt,
maður þurfti að hafa dálítið fyrir hlutunum,“ segir
Hrefna, sem var í þessu starfi nokkur sumur. Hún rifjar
upp að hún hafi ekki alltaf verið vinsæl. „Einu sinni
bakaði ég pönnukökur í nesti fyrir þá og setti í það
gallsúrt skyr. Þá fóru þeir nú ekki með Faðirvorið til
mín,“ segir hún og hlær dátt. „En þeir hlógu mikið að
þessu eftir á.“
Allt til alls í vinnubúðunum
Hrefna vann sem skólaliði í Grunnskólanum á Höfn
árið 2006 þegar starfsmaður Vegagerðarinnar, sem
ættaður var úr Öræfunum, hringdi í hana til að spyrja
hvort hún hefði áhuga á að gerast ráðskona hjá
brúarvinnuflokknum í Vík. „Þar sem ég var ekki að
vinna á sumrin kom sér þetta ágætlega fyrir mig og ég
sló til. Þeir hafa ekki losnað við mig síðan.“
Hrefnu leist strax vel á starfið. „Flokkurinn var að
mála brúna yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi þegar
ég byrjaði. Aðstaðan sem ég kom í þá var allt önnur og
betri en sú sem ég hafði upplifað áður. Þarna voru öll
tæki og tól til staðar.“
Vinnubúðir brúarvinnuflokksins eru misstórar
eftir verkefnum og staðsetningu. „Þegar engin önnur
aðstaða er í boði eru allar vinnubúðirnar fluttar á
staðinn. Það eru fimm gámar með herbergjum, en
tvö herbergi eru í hverjum gámi. Forstofa, skrifstofa,
setustofa, borðsalur og eldhús. Svo er einn
klósettgámur með sturtu og tveimur salernum,“ lýsir
Hrefna. Þegar blaðamaður Framkvæmdafrétta hitti á
hana er flokkurinn staðsettur í Borgarnesi og því ekki
þörf á að flytja herbergjagámana með í það skiptið.
„Það er heilmikið og dýrt fyrirtæki að flytja þessa gáma
á milli staða. Við erum mikið að flakka á milli staða og
því er reynt eins og hægt er að fá inni í annars konar
húsnæði,“ segir Hrefna en stundum er flokkurinn í
félagsheimilum, skólum eða annarsstaðar.
↑
Dýrindis jólahlaðborð sem Hrefna kokkaði
upp síðustu jól.
←
Hrefna tekur á móti blaðamanni í
fagurgrænum gámi brúarvinnuflokksins.