Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Page 14

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.09.2023, Page 14
14 Framkvæmdafréttir nr. 726 4. tbl. 31. árg. Tafir vegna kuldatíðar og afhendingu búnaðar Verklok voru áætluð í lok september 2022 en brúin var opnuð fyrir umferð í júní 2023. Vegna ytri aðstæðna urðu tafir á afhendingu búnaðar sem þurfti til brúargerðarinnar. Það varð þess valdandi að framkvæmdum seinkaði fram á vetur. Veturinn 2022-2023 reyndist afar kaldur með langvarandi frostatíð sem gerði erfitt um vik að steypa brúargólfið. Því var brugðið á það ráð að byggja yfir brúna og tjalda yfir og niður með hliðum að jörð. Kynt var bæði undir brúargólfið og einnig í tjaldinu yfir brúargólfinu áður en steypt var. Þar inni var orðinn um 10°C hiti þegar steypuvinna hófst. Steypuvinna við brúargólfið hófst að morgni þriðjudagsins 24. janúar og lauk seinnipart miðvikudagsins 25. janúar og hafði vinnan þá staðið yfir samfellt í 30 klukkustundir. Brúnni forðað frá stórtjóni Kuldatíðin hafði fleiri áhrif á framkvæmdina. Í janúar 2023 höfðu myndast klakastíflur í árfarveginum sem voru í þann veginn í bresta. Stefndi þá í stórtjón á brúnni sem var á viðkvæmu byggingarstigi. Við byggingu brúarinnar hafði árfarvegurinn verið þrengdur og verkpallar reistir yfir hann. Fyrirséð var að vatnsopið bæri ekki stóraukið vatnsrennsli með jakaburði. Til að bjarga málum var vegurinn að gömlu brúnni rofinn 19. janúar til að opna nýjan farveg fyrir ána og skapa svigrúm fyrir aukið vatnsrennsli. Næsta dag, þann 20. janúar, gerði asahláku eftir um sex vikna samfelldan frostakafla. Mikill ís var kominn á ána og því viðbúið að áin ryddi sig með miklu vatnsflóði og jakaburði. Þann 21. janúar, tveimur dögum eftir að vegurinn var rofinn, ruddi áin sig fram með miklu flóði og streymdi að hluta um hinn nýja farveg. Með stórvirkum vinnuvélum tókst verktakanum að bægja frá ísjökum og halda rennslinu greiðu á meðan vatnselgurinn var mestur og forða nýja mannvirkinu frá skemmdum. Slysatíðni Slysatíðni við brúna gömlu yfir Stóru-Laxá er ekki há. Fimm atvik hafa orðið frá aldamótum. Hins vegar urðu alvarleg meiðsli á fólki í tveimur tilvikum. ← Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Jón Bjarnason, oddviti Hrunamannahrepps, Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, klipptu á borða til að marka formlega opnun brúarinnar. ↓ Fjöldi gesta tók þátt í hinni formlegu opnun.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.