Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Page 3

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 23.10.2023, Page 3
Framkvæmdafréttir nr. 727 5. tbl. 31. árg. 3 „Gamla bryggjan var orðin mjög döpur og mikill munur á ásjónu hennar nú. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð frá fólki í bænum sem er mjög ánægt með nýju bryggjuna,“ segir Guðmundur sem kláraði bryggjusmíðina í lok júlí á þessu ári. Gamla Angróbryggjan, sem dregur nafn sitt af hinu sögufræga Angróhúsi á Seyðisfirði, var upprunalega reist í kringum árin 1945 til 1947. Hún var úr furu, um 50 m á lengd og 9 m á breidd með 7 m viðlegudýpt. Angróhúsið var byggt 1880 af Otto Wathne, sem oft er kallaður faðir Seyðisfjarðar. Það var í fyrstu kallað Engros, sem þýðir verslun, en með tímanum þróaðist nafn hússins í Angró. Á sínum tíma var húsið notað undir síldarverkun, verslun og íbúð og var í raun vagga stórveldis Wathne og nátengt fyrra síldarævintýrinu á Íslandi. Hafnadeild Vegagerðarinnar gerði ástandsskoðun á bryggjunni í mars 2021 og kom þá í ljós afar bágborið ástand hennar, sér í lagi á suðurenda bryggjunnar sem fór illa út úr aurskriðunum í desember 2020. Ný bryggja var boðin út 2022. Héraðsverk átti lægsta tilboðið upp á 146 m.kr. en Guðmundur, einn þekktasti bryggjusmiðjur á Íslandi, sá um bryggjusmíðina en hann hefur smíðað ófáar harðviðarbryggjur í gegnum tíðina. „Já, ég hef smíðað gríðarlega margar. Fyrst með föður mínum og síðar fór ég sjálfur að bjóða í verk þegar hann var fallinn frá. Þetta hefur verið stór hluti af mínu starfi, líklega í kringum 70 prósent af minni vinnu snýst um bryggjusmíði,“ segir Guðmundur. Inntur eftir því hvort margir kunni þetta verklag segir hann að þeim fari fækkandi. „Þeim hefur fækkað sem hafa reynslu af slíkri bryggjusmíði en það er fylgifiskur þeirrar þenslu sem hefur verið í þjóðfélaginu og færri sem sækjast í þessi verkefni.“ En harðviðarbryggjunar sjálfar, fer þeim fækkandi? „Nei, alls ekki. Harðviðarbryggjur verða alltaf til staðar enda hentar alls ekki alls staðar að vera með stálþil.“ Á Seyðisfirði er það einmitt uppi á teningnum. Fjörðurinn er mjög djúpur á þeim stað sem Angróbryggjan stendur og ekki hægt að nota stálþil. Þá skipti það einnig Múlaþing nokkru máli að halda í upprunalegt útlit bryggjunnar enda eru þrjár aðrar trébryggjur á svipuðum slóðum í svipuðum stíl. ↓ Við ástandsskoðun í mars 2021 kom í ljós að bryggjan var afar illa farin.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.