Dagfari - 01.03.2024, Page 3
gegn öllum tillögum um vopnahlé.
Evrópuríkin eru flest sátt við að
syngja með og í Þýskalandi og
fleiri löndum hefur öll andstaða við
ódæðisverk Ísraels verið stimpluð
sem gyðingahatur, sem er mjög
varasöm afstaða.
Viðbrögð íslenskra stjórnvalda hafa
líka valdið vonbrigðum. Ísland sat
hjá í fyrstu atkvæðagreiðslu
Allsherjarþings SÞ um vopnahlé
og lítið hefur farið fyrir beinum
fordæmingum á framferði Ísraels
gegn ríki sem við þó viðurkennum
sem fullvalda. Máttleysi viðbragð-
anna er sérstaklega áberandi þegar
það er borið saman við aðgerðir gegn
Rússlandi. Það er hins vegar lofsvert
að utanríkis-ráðuneytinu hafi loksins
tekist að bjarga tugum palestínskra
dvalarleyfishafa úr herkvínni eftir að
sjálfboðaliðar höfðu haft frumkvæði
að því að sækja fólk þangað. En eftir
sitja meira en tvær milljónir
Palestínumanna.
Ef Vesturlönd horfa aðgerðalaus
á bandalagsríki sitt komast upp
með þjóðernishreinsanir mun það
hafa víðtækari afleiðingar en bara
fyrir Palestínumenn. Átökin munu
breiðast út um botn Miðjarðarhafs,
virðing fyrir alþjóðalögum mun bíða
enn frekari hnekki, fordæmið verður
sett fyrir önnur fasísk öfl sem stefna
að því að útrýma þjóðfélagshópum
og samviska okkar allra verður
svartari.
Guttormur Þorsteinsson.
formaður SHA