Dagfari - 01.03.2024, Qupperneq 25
aukin virkni öllum á þessum stöðum
á undanförnum árum. En Rússar
hafa ekki framkvæmt kjarnavopna-
tilraunir síðan 1990,Bandaríkjamenn
ekki síðan 1992 og Kína ekki síðan
1996. Athugið að þessar síðustu
tilraunir voru neðanjarðar, þar sem
það hefur ekki verið gerð nein
kjarnavopnatilraun ofanjarðar síðan
1980 (sem var framkvæmd af
Kínverjum). En kjarnavopnatilraunir
ofanjarðar eru talsvert hættulegri
vegna geislavirks ofanfalls sem þær
hleypa upp í andrúmsloftið. Enda
er það ástæðan fyrir því að hætt var
prófa kjarnavopn ofanjarðar fyrir
svo löngu.
Það er vissulega mikið áhyggjuefni ef
stórveldin fara aftur að stunda
kjarnavopnatilraunir. Það myndi
minna um margt á ástandið í kalda
stríðinu hinu fyrra.
Jafnvel þó það slíkar tilraunir væru
aðeins neðanjarðar, en ekki ofan-
jarðar. Þó er vert að taka fram að
þessar vísbendingar sem hér hafa
verið taldar upp þýða ekki endilega
að ríkin muni virkilega hefja kjar-
navopnatilraunir á ný. Heldur þýðir
þetta að þau séu tilbúin til þess, sem
svar við hvoru öðru ef eitthvert þeir-
ra skyldi gera það. Þetta er allavega
það sem Rússar segja sjálfir, að þeir
hafi engar áætlanir um að hefja
kjarnavopnatilraunir á ný, en að þeir
þurfi aftur á móti að vera reiðubúnir
til þess, skyldu Bandaríkin verða
fyrri til. Talsvert meira væri hægt að
segja um kjarnavopnatilraunir og
sögu þeirra. Mögulega verður það
gert í næstu útgáfu.
Tjörvi Schiöth,
doktorsnemi í sagnfræði