Dagfari - 01.03.2024, Side 9

Dagfari - 01.03.2024, Side 9
Hlutlausum þjóðum fækkar Á dögunum var síðustu hindrunum rutt úr vegi fyrir inngöngu Svíþjóðar í Nató. Öll Norðurlöndin fimm eru þá orðin aðilar að hernaðar- bandalaginu og gleður það mjög stríðshauka sem vilja nú fara að ræða hernaðarmál á vettvangi Norðurlandaráðs. Með Nató-inngöngunni hverfa Svíar með einu pennastriki frá tveggja alda hlutleysisstefnu sinni en áður höfðu Finnar gengið til liðs við bandalagið. Þetta eru slæmar fréttir fyrir friðarsinna. Aukin umsvif og styrkur hernaðarbandalaga ýtir undir vígvæðingu og eykur líkur á hernaði. Eftirtektarvert er hvað þessi grund- vallarstefnubreyting var keyrð í gegn með miklum flýti og án lýðræðis- legrar umræðu. Yfirmenn sænska hersins hafa reyndar leynt og ljóst unnið að því á liðnum árum að gera Svía að óformlegum aukaaðilum að Nató, m.a. með því að gera landið að vettvangi víðtækra heræfinga og þá einkum herþotu- flugs. Afstaða almennings til Nató-aðildar hefur verið margoft verið mæld í skoðanakönnunum í Svíþjóð þar sem meirihlutinn hefur nær alltaf verið andvígur – stundum svo miklu munar. Í umrótinu í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu varð skyndileg afstöðubreyting og var sá gluggi notaður til að knýja málið áfram með lágmarksumræðu. Nú þegar hefur fylgisaukningin við Nató gengið að miklu leyti til baka og meirihluti Svía telur að landið hafi gengið of langt í pólitískum hrossakaupum við yfirvöld í bæði Tyrklandi og Ungverjalandi til að fá aðildina samþykkta. Sænska ríkisstjórnin tók ekki í mál að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið og er hætt við að sú ákvörðun muni draga dilk á eftir sér í sænskri þjóðfélags- umræðu þegar fram í sækir, eins og okkur Íslendingum ætti að vera vel kunnugt. Á sama tíma berast fregnir af því að sænska íhaldsstjórnin gangi hart fram í að skera niður framlög til friðarhreyfinga í landinu til að þagga niður í öllu andófi. Ljósmyndari: Eiður Bergmann

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.