Dagfari - 01.03.2024, Qupperneq 4

Dagfari - 01.03.2024, Qupperneq 4
Austurvöllur 30. mars 1949 Mótmælin við Alþingishúsið daginn sem aðild Íslands að Nató var samþykkt, er líklega dramatískustu atburðir í stjórnmálasögu tuttugustu aldar. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík hafði boðað til mótmælafundar þar sem þess var krafist að Nató-aðild yrði borin undir þjóðaratkvæði. Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna brugðust við þessu með því skringilega útspili að hvetja almenna borgara til að mæta á Austurvöll, eins og til að mynda eitthvað mótvægi við hin skipulögðu mótmæli. Á sama tíma hafði svokallað varalið lögreglunnar, sem að miklu leyti var skipað félögum í Heimdalli, verið útbúið með hjálmum og bareflum og komið fyrir í þinghúsinu. Síðar kom í ljós að aðstandendur mótmælafundarins máttu sæta símahlerunum í aðdraganda hans. Þrátt fyrir fjölda vitna og kvikmyda- upptökur, hefur alla tíð verið deilt um atburðarásina á Austurveli. Blöð ríkisstjórnarflokkanna staðhæfðu að mótmælendur hefðu ráðist á þinghúsið og lögregla og varalið hrundið þeirri árás. Herstöðvaand- stæðingar hafa alla tíð hafnað þeirri túlkun og bent á myndir máli sínu til stuðnings. Að þeirra mati var það varaliðið sem hóf tilefnislitla árás á friðsama mótmælendur og sundraði hópi þeirra með ofbeldi, áður en lögreglulið fylgdi á eftir með táragas. Dómsvaldinu var blygðunarlaust misbeitt í pólitískum tilgangi í kjölfar málsins. Tuttugu manns fengu dóma vegna mótmælanna þar sem þeim var gefið að sök að hafa ráðist gegn Alþingi. Sumir fangelsis- dómanna voru skilorðsbbundnir en aðrir ekki og hluti hópsins mátti þola missi borgaralegra réttinda, s.s. kosningaréttar og kjörgengis.

x

Dagfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.