Dagfari - 01.03.2024, Side 10

Dagfari - 01.03.2024, Side 10
Hernaðurinn og loftslagið Það er gömul saga og ný og fátt er eins skaðlegt fyrir umhverfið og hernaður. Í átökum láta stríðsaðilar sprengjum rigna með tilheyrandi eyðileggingu. Landsvæði er miskunnarlaust spillt í þágu hernaðarmarkmiða og hvers kyns eiturefnum hleypt út í umhverfið. Í yfirstandandi stríði í Úkraínu höfum við t.a.m. horft upp stríðsaðila tefla á tvær hættur með sprengjuárásum á virkt kjarnorkuver sem gæti valdið stórslysi og viðkvæmum landsvæðum hefur verið sökkt undir vatn með því að sprengja uppistöðulón og valda flóðbylgjum. Jarðsprengjur og ósprungnir hlutar, svo sem úr klasasprengjum, halda svo áfram að valda tjóni á dýrum og mönnum löngu eftir að búið er að leiða sjálf stríðsátökin til lykta. Syndalisti herstjórnenda heimsins er langur þegar kemur að umhverfismálum, líkt og rakið var í þemahefti Dagfara sem kom út á árinu 2020. Þar var einnig fjallað um annan þátt sem skiptir ekki síður máli, þar er hin skefjalausa olíunotkun herja veraldar jafnt í stríði sem á friðartímum. Kolefnisfótpor tengt hernaði og hermennsku er gríðarstórt en um það er sjaldan rætt. Á tímum þar sem stjórnvöld gera framleiðendum hvers kyns varnings skylt að gera grein fyrir vistspori niður í smæstu einingar til að upplýsa almenning, eru herir að mestu leyti undanskildir slíkri skráningarskyldu og geta falið sig á bak við leyndar- og öryggissjónarmið. Upphaf þessa máls má rekja til Kyoto-samkomulagsins frá 1997, sem náðist í samnefndri borg í Japan og fól í raun í sér fyrstu alvarlegu tilraunina til að koma böndum á hömlulausa brennslu mannkynsins á jarðefnaeldsneyti. Að kröfu Bandaríkjahers var öll losun tengd herjum undanskilin í samkomulaginu. Á þessi skilyrði var fallist enda flest talið til þess vinnandi að ná Bandaríkjunum um borð í samningunum. Loðin tölfræði Í Parísarsamkomulaginu árið 2015 var byrjað að vinda ofan af þessari undanþágu, þar sem farið var gera kröfu til ríkja að þau reyndu að áætla losun vegna herja sinna, en þyrftu þó ekki að birta þær tölur sundurliðaðar heldur mætti fela þær inni í tölfræði um aðra og óskilgreinda losun.

x

Dagfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.