Dagfari - 01.03.2024, Side 22
að Rússar hafi eldflaugar sem er ekki
hægt að skjóta niður. Þá hefur nýja
langdræga RS-28 Sarmat eldflaug
Rússa, sem var fyrst skotið á loft í
apríl 2022 og var tekin í notkun í
september 2023, einnig þann tilgang
að komast framhjá loftvarnar-
kerfum Bandaríkjanna og banda-
manna þeirra.
Undir venjulegum kringumstæðum
er langdrægum eldflaugum
Rússlands og Bandaríkjanna miðað
yfir norðurpólinn í stystu loftlínu. En
RS-28 Sarmat eldflaugin (sem er
öflugasta og langdrægasta eldflaug
sem hefur verið tekin í notkun
hingað til) hefur þann eiginleika
að hægt væri að skjóta henni frá
Rússlandi alla leið yfir suðurpólinn á
leiðinni til meginlands
Bandaríkjanna, og myndi
þannig skauta alfarið framhjá þeirra
hefðbundnu loftvarnarkerfum. Sjá
greinina “Russia’s Nuclear Weapons
Buildup is Aimed at Beating U.S.
Missile Defenses” (The National
Interest, 2018). Þetta sýnir að
Rússar hafa tekið þessu alvarlega og
brugðist við. Þetta er hið nýja
kjarnavopnakapphlaup sem við
erum að horfa upp á, í þessu en-
durnýjaða kalda stríði á milli
stórveldanna.
Þá drógu Bandaríkin sig einnig til
baka árið 2020 úr samningnum sem
kenndur er við “Treaty on Open
Skies”, og Rússland fylgdi í kjölfarið
árið eftir. Þessi samningur fól í sér
samstarf um eftirlit og upplýsinga-
öflun um hernaðartengd mál. Hann
átti að stuðla að auknu gagnsæi og
opnari og betri samskiptum á milli
stórveldanna, í því skyni að koma
í veg fyrir mögulegan misskilning;
neistann sem gætu kveikt í púður-
tunnunni og leitt til styrjaldar, eins
og sagan hefur sýnt. Nú er svo komið
að samskipti milli Bandaríkjanna
og Rússlands – og deiling upplýsinga
um hernaðar- og vopnatengd
mál – eru nánast engin. Það er
svipuð staða og var í upphafi kalda
stríðsins þegar samskipti milli
ríkjanna voru hvað köldust og van-
traustið algjört. Þegar þau þurftu að
beita njósnum (með flugvélum og
síðar gervihnöttum) til að komast að
því hvað andstæðingurinn væri að
gera. Þetta eykur verulega líkurnar á
einhverskonar misskilningi,
misbresti eða slysi, sem getur haft
alvarlegar afleiðingar.