Úrval - 01.03.1967, Blaðsíða 12
10
ÚRVAL
Sjálfvirkar sjúkdómsgreining-
ar með tækjum.
1988 Gervimenn vinna heimilisstörf.
2000 Fundið verður nýtt tungumál
til aðstoðar við sjálfvirkar þýð-
ingar.
2002 Sjálfvirk umferð á sjálfvirkum
vegum.
2005 Blöð verða prentuð í heima-
húsum.
Viljirðu halda litlum dreng frá búrinu, skaltu læsa þvi og fela lykilinn
undir sápustykki.
E'inn kaldan vetrarmorgun lagði litill snigill af stað upp eftir stofni
kirsuberjatrés. Hann var að smámjaka sér upp eftir stofninum, þeg-
ar snaggaraleg bjalla stakk hausnum út úr sprungu á berkinum og
sagði: „Þú ert nú meiri bjáninn. Þetta erfiði þitt er allt til einskis. Það
eru engin kirsuber þarna uppi.“
„Hafðu engar áhyggjur af því“, svaraði snigillinn rólega. „Þau verða
þar, þegar ég kemst þangað."
Eiginkonan: „Ég keypti dálítið handa þér í dag, svolítið, sem mun
koma þér á óvart."
Eiginmaðurinn: ,,Æ, ég get varla beðið eftir að sjá það, góða.“
Eiginkonan: „Bíddu augnablik, á meðan ég fer í það.“
Eitt sinn átti maður einn skattheimtumann að vini, eða svo segir
sagan að minnsta kosti. Sem sönnun hinnar miklu vináttu gaf hann
skatteimtumanninum oft gjafir, og að lokum gekk þetta svo langt, að
skattheimtumaðurinn fann sig knúinn til þess að skrifa mótmaHabréf
og biðjast undan öllu þessu gjafaflóði. Hann tók það fram í bréfi
sínu, að hann kynni vel að meta vináttu vinar sins og örlyndi, en hann
gæti samt ekki haldið áfram að þiggja gjafir þessar vegna hinnar á-
byrgðarmiklu stöðu sinnar og sér til verndar yrði hann því að tilkynna
vini sinum það, að allar frekari gjafir lentu beint í eldinum.
Vinur hans svaraði og sagðist vel skilja aðstæður hans, en samt væri
ekki hægt að kveða örlæti hans í kútinn. Og næsta dag sendi hann
skattheimtumanninum tonn af kolum.
„600“ Magazine.
Þegar fólk virðir okkur ekki, erum við innilega móðguð. En samt
er það nú svo, að i innstu fylgsnum hjarta síns virðir enginn maður
sjálfan sig neitt að ráði.
Mark Twain.