Goðasteinn - 01.09.1970, Blaðsíða 5
Æviminningar
Klemenzar Kr. Kristjánssonar
Fjórði hluti og niðurlag
Tilraunastöðin á Sámsstöðum í Fijótshlið
Það var hinn 24. apríl 1927, sem ég lagði af stað austur. Hafði ég
tvo til reiðar, en ekki voru reiðskjótar sem glæsilegastir, jörp
hryssa, fylfull, og grár sex vetra foli, lítt taminn. Þessum hrossum
þurfti ég að koma austur og auðveldast var að fara með þau á
þennan hátt. Fjóra daga var ég á leiðinni og er það hæg ferð.
Kom ég £*ð Sámsstöðum hinn 28. apríl og tók ég þá þegar til
starfa við að undirbúa endurbætur á þeim byggingum, sem þar
voru, svo og að setja upp girðingu um 10 hektara svæði fyrir
neðan þjóðveginn. Ekki er unnt í þessari frásögn að skýra frá
öliu því fólki, sem vann hjá mér í byrjun, cn allt var það dug-
legt og vinnusamt fólk eins og Sigurjón Þórðarson á Lambalæk
og Steinn bróðir hans, er báðir voru úrvals verkmenn og fjölhæfir
til vinnu, hvort sem um var að ræða smíðar, girðingavinnu eða
önnur störf. Mér var tekið mjög vel í Fljótshlíðinni og virtist
mér, sem allir vildu greiða götu mína. Var mér það mikil hvatn-
ing í starff.
Þann hluta jarðarinnar, scm ckki var nýttur fyrir rekstur til-
raunastöðvarinnar, tók ég á leigu. Um vorið og sumarið flutti ég
austur það efni af grasfóðri, er ég hafði safnað á undangengnum
fjórum árum og auk þess fékk ég nokkuð úr Gróðrarstöð Bún-
aðarfélagsins. Gróðursetti ég þetta heima á Sámsstöðum og síð-
ar í girðingu fyrir sunnan þjóðveg. Byrjaði nú þetta starf, er ég
Goðasteinn
3