Goðasteinn - 01.09.1970, Qupperneq 9
Hafrauppskera - Kornhlaðan í baksýn.
Jarðræktin var aðalverkefnið á Sámsstöðum og jókst hún stöð-
ugt með ári hverju. Var svo komið, þegar ég hætti, 72 ára gamall,
Arið 1967 að ræktað land stöðvarinnar var um 60 hektarar, en
allt land stöðvarinnar var um 71 ha. Auk þess voru um 16 ha.
ræktað land úti á Geitasandi, en þar átti stöðin um 40 ha. svæði,
er var notað til tilrauna með nytjajurtir á örfoka landi og eyði-
söndum. Þar hófust tilraunir fyrst árið 1940, og voru þær fyrstu
sex árin ekki á vcgum stöðvarinnar, heldur að tilstuðlan fimm
manna, er gengust fyrir sandræktun á þessum stað, er liggur um
það bil 500 metrum vestan Eystri-Rangár. Árið 1947 kcypti Til-
raunastöðin land þetta af okkur, sem staðið höfðum í þessum
framkvæmdum, en þcir voru auk mín Guðmundur Þorbjarnarson
á Stóra-Hofi, Hákon hæstaréttarritari, sonur Guðmundar, Hákon
Bjarnason, skógræktarstjóri og Hermann Jónasson, ráðherra. Þessi
starfsemi jókst nokkuð eftir að stöðin eignaðist landið, og voru á
þeim tíma gerðar tilraunir mcð ýmislegt varðandi sandræktun,
reyndar ýmsar grastegundir, smárategundir, korn, belgjurtagræn-
Goðasteinn
7