Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 12
að 300-350 kg af brennisteinssúru kalí væri að því er cr virtist
hæfilegt magn og ekki yfir 350-400 kg þrífosfat og 500-600 kg af
kjarna á ha. Meira magn af köfnunarefni eykur að vísu upp-
skerumagn, en gæðum hrakar, svo að kartöflurnar verða verri
til matar og geymast verr. Því er hóflegt áburðarmagn heppilegast.
Þá voru gerðar allmiklar sáðskiptatilraunir og sýndi það sig
að bezt er að rækta ekki lengur en tvö ár í röð á sama landi.
Einnig voru gerðar tilraunir með ýmis arfadrepandi lyf í nær tvo
áratugi. Sýndi það sig að með réttri notkun tröllamjöls má spara
mikla vinnu í hirðingu, ef borin eru á 250-300 kg á ha. um það
bil 6-10 dögum fyrir uppkomu grasa. Reynd voru ýmis önnur
lyf, sem óþarft er að nefna, nema þá þau, sem bezt gáfust. Þeirra
á meðal er Arisín, 2-3 kg á ha., hvítt duft. Dregur það stundum
úr uppskeru, en heldur arfa alveg niðri. Afalon reyndist bezta
lyfið. Það er einnig hvítt duft og þarf af því 2-2,5 kg á ha. Báð-
um þcssum lyfjum þarf að úða yfir garðinn áður cn grös koma
upp. Mygluvarnarlyf hafa verið reynd hér, og mikil trygging er
að nota þau hér sunnanlands, þar sem myglan er útbreiddust.
Þetta, sem hér hefur verið nefnt, er það helzta, sem tilraunir í
kartöflurækt á Sámsstöðum hafa leitt í ljós á liðnum árum.
Árið 1932 varð mikil breyting til bóta á Sámsstöðum. Þá flutti
ég frá Mið-Sámsstöðum í nýtt íbúðarhús, sem byggt hafði verið
115 m ofan við Fljótshlíðarveg. Varð þar með öll aðstaða betri,
og jókst starfsemin til mikilla muna. Búnaðarfélag Islands rak
Tilraunastöðina frá upphafi 1927 til 1940, er ný lög um tilraunir
voru samþykkt á Alþingi, þar sem ríkið sjálft lagði jarðræktar-
stöðvunum til stofn- og rekstrarfé. Árið 1951 keypti svo ríkið Sáms-
staði með búi og öllum þeim verðmætum, er þar höfðu skapazt
á liðnum árum. Hcfur sú skipan haldizt síðan og eftir ennþá ný
lög gildir þetta fyrir þær fjórar jarðræktarstöðvar, sem í landinu
eru, en það er á Sámsstöðum, Akureyri, Skriðuklaustri og Reyk-
hólum. Tvær síðast nefndu stöðvarnar voru stofnaðar árið 1946.
Heyra þær allar undir stjórn Rannsóknarstofnunar landbúnaðar-
ins og fer allt reikningshald þeirra fram í Reykjavík, en áður önn-
uðust tilraunastjórarnir sjálfir það. Veit ég vart, hvort fyrirkomu-
lagið er betra, en úr því getur reynslan ein skorið.
10
Goðasteinn