Goðasteinn - 01.09.1970, Side 14

Goðasteinn - 01.09.1970, Side 14
völlur fyrir kornyrkju við bær aðstæður, scm cru hér á Suður landi. En cinnig var kornyrkja reynd í smáum stíl í flestum sýsl- um landsins og oftast á ioo til 300 stöðum. Kornið frá flestum þessum stöðum var svo rannsakað og fékkst þá yfirlit um gæði framleiðslunnar. Árið 1933 stofnuðu nokkrir bændur undir Vestur- Eyjafjöllum kornyrkjufélag, sem aðeins starfaði í fjögur ár. Va,- kornfok aðalorsök þess að það félag hætti. Þá var rekin korn- rækt í Reykholti í 4 eða 5 sumur, en þar reyndist of kalt, nema í beztu sumrum. Ýmislegt annað kom og til, sem áhrif hafði á árangurinn, m. a. að ekki var hægt að sá nógu snemma. Síðar hefur svo kornrækt verið reynd eftir 1958 í stærri stíl. Hefur hún gengið misjafnlega og verið hætt, ef citt til tvö sumur hafa brugð- izt með góðan þroska. Misjafnar skoðanir hafa komið fram um það, hvernig haga skuli kornyrkju hér á landi, og gerðu sér sum- ir vonir um að stórrekstur á þessu sviði væri beztur og án þess að tengt væri öðrum búskap með kvikfé, er hirti hálm og korn eins og hagkvæmast verður eftir minni reynslu. Ég tel það mikil- vægt að bóndinn hafi eigin akur í sambandi og í skiptum við aðra ræktun. Það er t.d. ekki lítilvægt atriði að á Sámsstöðum var framlcitt 50-70% þess fóðurbætis, sem notaður var í búfé yfir 30 ár. Ég hef haft þá skoðun og hcf enn að meiri reglu og skipulags sé almennt þörf í jarðrækt, og að kornið sé haft í skiptum við aðrar sáðjurtir. Sé það þá tekið þroskað, þegar árar til full- þroska, en slegið til heyfóðurs, ef það er ekki fullskriðið fyrir ágústbyrjun. Tilraunirnar í kornyrkju og sú framleiðsla, sem varð ár bvert, notaðist á tvennan hátt. I fyrsta lagi fékkst þekking á fjölmörgum atriðum varðandi framkvæmd kornræktar, og í öðru lagi fékkst nægilegt fóðurkorn til spörunar aðkeyptum fóðurbæti og útsæði bæði tii hcimanota og sölu til fjölmargra annarra staða. Hvort sú vinna, sem lögð var í tilraunir kornyrkju, hafi hagnýt áhrif fyrir framtíðar fóðuröflun í landinu, fer auðvitað eftir því, hvort menn gera sér ljóst gildi sáðræktar til að tryggja ódýrara fóður en með túnrækt einni saman. Einnig ræður það miklu, hvort tíðarfar verður svo hagstætt, að nægur þroski fáist á korni því, sem ræktað er á hverju sumri. Þá er nauðsyn, að áfram verði 12 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.