Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 16
cru þrjár verksmiðjur á þessu sviði starfandi í landinu og gras-
rnjöl ekki lengur flutt inn eins og áður tíðkaðist.
Um aðra starfsemi á Sámsstöðum er það að segja, að megin-
hluti tilraunareitanna var í túnrækt og framræslu. Ber þar mest
á tilraunum mcð áburð, tilbúinn áburð og húsdýraáburð. Efalaust
hafa þær tilraunir gert talsvert gagn, því að þær hafa á ýmsan
hátt skýrt verkanir tilbúins áburðar,roagn á hektara og áburðar-
tíma. Þá voru um skeið tilraunir með skjólsáð fyrir túnrækt, sáð-
tíma grasfræs, endurræktun túna, hvít- og rauðsmárarækt með
grastegundum og fleira. Er sárt til þess að vita, að þær tilraunir
skuli ekki hafa bætt túnræktina almcnnt, því að auðveldara hefur
þótt að nota aðkeypt köfnunarefni en að láta smárategundirnar
vinna það ókcypis úr loftinu með aðstoð rótarbaktería.
Talsvert var unnið að trjárækt á Sámsstöðum, bæði heima við
aðalbyggingar stöðvarinnar og út um tún, þar sem gerð voru
skjólbelti til skjóls og skrauts. Mest var ræktað af birki og rann-
sóknir sem gerðar voru á byggþroskun sýndu 16-60% aukið
mjölmagn, þar sem skógarskjóls naut við. Eflaust á skjólbelta-
rækt framtíð fyrir sér í landi okkar og fullvíst er, að skjólbelta
er mikil þörf til þess að hamla gegn næðingi og álagi vinda á
vaxandi gróður.
Á síðustu tíu árum mínum á Sámsstöðum var talsvert fengizt
við tilraunir með grænfóður, hafra- og belgjurtagrænfóður alveg
frá 1935 og svo ýmsar káltegundir, sem hafa rutt sér til rúms nú
á seinni árum. Með þessum tilraunum fundum við hentugar teg-
undir og afbrigði káltegunda, svo og magn og tegundir áburðar
fyrir kálrækt.
Þá má minna á, að síðan tilraunastöðin tók til starfa, hafa þar
farið fram veðurathuganir. Ná þær veðurfarsskýrslur yfir 39 ára
tímabil og liggja þær fyrir í aðgengilegu formi til athugunar og
yfirsýnar.
Er þá talið í stórum dráttum það helzta, scm unnið hefur ver-
ið þau 40 ár, sem ég var á Sámsstöðum. Er þá eftir að greina
frá því, sem gerði mér fært að koma þessum framkvæmdum
áfram. Starfsfólk hefur oftast nær verið heimilisfast hjá mér fram
til 1945, en nokkru minna eftir að verkamannabiistaðurinn var
14
Godasteuin