Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 18

Goðasteinn - 01.09.1970, Síða 18
landinu. Sumir þcirra unnu hjá mér á haustin við uppskerustörf. Var þetta því mannmargt heimili og talsverð umsvif önnur en tilraunastörfin. Sú saga verður ekki sögð hér, en minnast skal þess, að margt það fólk, er ég hafði til starfa, var úrvalsfólk, sem mat hag starfseminnar í verki. Ég var ókvæntur, þegar ég kom að Sámsstöðum, og bjó með ráðskonu, sem var ágæt á margan hátt. En árið 1929 gekk ég að eiga ungfrú Ragnheiði Nikolásdóttur frá Kirkjulæk. Reyndist hún mér ágæt kona og húsmóðir og starfaði með mér unz hún lézt 25. nóvember 1950 eftir rúmlega 21 árs sambúð. Börn eignuðumst við ekki, en tókum til uppeldis tvö fósturbörn, dreng og stúlku. Síðan 1951 hefur verið ráðskona hjá mér Þórey Stefánsdóttir frá Hjöllum í Gufudalssveit. Hefur hún staðið fyrir heimili mínu. Son eignuðumst við saman, Trausta, sem nú er á gagnfræða- skólaaldri. Árið 1956 fékk ég land hjá sýslunefnd Rangárvallasýslu í Hvols- velli. Voru það 20 ha. og ræktaði ég það allt í tún fyrir 1959 og lauk nauðsynlegum byggingum 1961. Frá þeim tíma og tii 1967 hafði Samband ísl. samvinnufélaga jörð og hús á leigu. Síðan flutti ég á þennan stað hinn 12. júní 1967, og heitir býlið Korn- vellir. Þar hefur oftast verið dálítil kornrækt, aðallega bygg. Nú er ég laus við allt umstang fyrir það opinbera og rek lítilsháttar rannsóknir fyrir mig, einkum í smárarækt með korni. En ekki er öllu lokið um frásögn mína frá Sámsstöðum, því að eftir er að nefna þau störf, sem ég hef unnið umfram starf- rækslu bús og tilrauna á staðnum. Fyrstu árin, eða til 1935, var ég að mestu laus við aukastörf, en svo var það ekki alla tíð. Ég var formaður Búnaðarfélags Fljótshlíðar í 30 ár, sat 26 ár í skatta- nefnd, í 15 ár var ég formaður og framkvæmdastjóri Ræktunar- sambands Fljótshlíðar, Hvolhrepps og Rangárvalla, og formaður Fóðurbirgðafélagsins var ég í sex ár. Þá sat ég í stjórn Sjúkra- samlags Fljótshlíðar um árabil og sá um virðingu á eignum til lántöku fyrir Búnaðarbanka íslands og fleira. Allt þetta tók tíma og ekki var komizt hjá löngum vinnudegi öðru hverju. Ekki kom það mjög að sök, því að heilsan var oftast góð. Þakka ég það reglusömu lífi og eðlislægri hreysti. Á árunum 1958-66 var ég 16 Goðasteinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.