Goðasteinn - 01.09.1970, Side 27
tvær, en þær beittu allri sinni orku að því að komast í átt að
hellinum og í fjallatindana, þar sem greinilega voru stöðvar þeirra.
Við rákum þær eftir dal, sem bergvatnslækur rann eftir. Með hon-
um sáust víða minkaför. Eftir þessum Minkadal var allgreiðfær
leið til norðausturs, í átt til bílanna. Myndi þarna akfær vegur
fyrir bíla norður á Tungnáraura.
Það er frá hinum ieitarmönnunum að segja, að þeir biðu okkar
hjá Austin jeppanum við Tungná og höfðu þær fréttir að segja,
að í leit þeirra höfðu aðeins orðið tvær dauðar ær, sem drepizt
höfðu um vorið, áðurnefnd ær Eiríks í Svínadal, hin frá Árna
Oddsteinssyni í Othlíð og höfðu gengið úti með útigöngunum,
sem við fundum. Allt benti til, að dauðu ærnar hefðu báðar verið
lambfullar og dáið úr hor en hinar tvær, sem eftir lifðu, geldar.
Sviðið bak við tjald fortíðar skírist, og uppistaðan í myndinni
verða útigangarnir og hellirinn með áratuga skánarlögum. Um-
hverfis hellinn og í nágrenni er nokkurt kindakropp og á mosa-
vöxnum fjallatindum vex fjalldrapi, rjúpnalauf, ýmsar tegundir
af punti o. fl. Hér hefur baráttan oft verið hörð. Af helstríði
lífsins er hér cnginn til frásagnar, en umhverfið er þar þögult
vitni.
Við héldum áfram ferðinni að hinum bílnum, og nú var lagt af
stað heimleiðis, suður yfir fjallgarðinn og austan undir Breiðbak.
Þar ákváðum við að hafa næturstað, enda hið ákjósanlegasta
tjaldstæði. Þá er klukkan 10 um kvöldið. Hér er skjólgott, dal-
kvos umgirt hamrabelti, með nokkrum gróðri, m. a. hvönn með-
fram berginu. Tær lækjarbuna fellur hér framaf bergstalli, svona
rúmlega meiri en í flöskustút. Nokkuð rómantízkt að sofna og
vakna við tóna náttúrunnar, suðið í lækjarbununni. Ég kalla stað-
inn Gljúfrabúðir. Hér fundum við ný kindaför. Klukkan 7 um
morguninn var farið að hyggja að framhaldsferðalagi. Þeir Sverr-
ir á Ljótarstöðum og Árni í Gröf fóru gangandi vestur yfir Breið-
bak og síðan suður með Klakkafjöllum að vestan. Við hinir fór-
um á bílnum austan megin og skyldum fylgjast með og taka kind-
ur ef þær kæmu í ljós frá leitarmönnunum, sem við og gerðum.
Þeir komu með tvær dilkær frá Svínadal, sem brátt voru hand-
samaðar.
Goðasteinn
25