Goðasteinn - 01.09.1970, Page 28
Það er ekki hægt að skilja svo við þennan stað, að ckki sc
litið til Fögrufjalla og Langasjós. Við ökum austur á fjallbrúnina.
Það er fögur sýn að líta yfir Fögrufjöllin líkt og úr lofti; hæðar-
munurinn er svo mikill. Fögrufjöll böðuð síðdegissól, hinn dimm-
blái flötur Langasjós með eyjunni Meyjarsæti úti í vatninu, sveip-
aðri likt og grænu flosteppi. Kind og kind má greina í sjónauka,
þótt fjarlægðin sé mikil. Við vorum staddir meðfram Lónakvísl,
er við sátum fyrir kindunum, biðum þar góða stund. Þar getur
að líta sérkennilegan fjallskamb með gati í gegn. Nefni ég hann
Ask. Þar neðan og vestan við er allstórt og tært stöðuvatn, hömr-
um girt að mestu. Er fallegt að líta niður á það ofan af fjalls-
tindinum. Þar er allálitlegt til veiða. Myndi ég kalla vatnið Ask-
vatn svona til aðgreiningar frá hinum vötnunum.
Brátt komu nú göngumennirnir, og þá var ekki til setunnar
boðið. Við snæddum af nesti okkar og héldum svo heim á leið
með 3 kindur. Ekkert frásagnarvert skeði á heimleið, utan það,
að vestan Skuggafjalla lá kind ósjálfbjarga í afvelti. Við höfðum
aðeins pláss fyrir hana á húddi bílsins, og þar var hún höfð til
byggða. I byggðina niður í Skaftártungu komum við kl. 8 um
kvöldið.
20/12 1965
26
Goðasteinn